U18 ára kvenna landsliðið í Suður Afríku

by | 23 jan, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

U18 kvenna landslið Íslands í íshokkí heldur til Cape Town í Suður-Afríku í dag, þar sem liðið tekur þátt í HM U18 kvenna, II. deild, B-riðli á vegum Alþjóða íshokkísambandsins (IIHF).

Mótið fer fram í Cape Town og er leikið í einfaldri umferð þar sem öll lið mætast einu sinni. Andstæðingar liðsins verða Belgía, Tapei, Rúmenía, Mexíkó og heima konur í Suður Afríku. Liðið hefur lent í öðru sæti síðustu tvö tímabil og verður því spennandi að fylgjast með hvort þær nái að næla í þann stóra núna.

Friðrika var markahæst allra á mótinu í fyrra

Liðið er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Aníta Júlíana Benjamínsdóttir

Bríet María Friðjónsdóttir

Brynja Líf Þórarinsdóttir

Díana Lóa Óskarsdóttir

Elfur Íris Einarsdóttir

Eyrún Arna Garðarsdóttir

Freyja Rán Sigurjónsdóttir

Friðrika Ragna Magnúsdóttir

Heiða Ásmundardóttir

Heiðrún Helga Rúnarsdóttir

Kolbrún Björnsdóttir

Kristina Ngoc Linh Davidsdóttir

Magdalena Sulova

Marey Viðja Sigurðardóttir

Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir

Sofía Bjarnadóttir

Sólrún Assa Arnardóttir

Svandís Pétursdóttir

Sylvía Mörk Kristinsdóttir

Ylfa Bjarnadóttir

Flottur hópur

Starfslið:

Kim McCullough, Aðalþjálfari

Silvía Björgvinsdóttir, Aðstoðarþjálfari

Teresa Snorradóttir, Aðstoðarþjálfari

Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir, Fararstjóri

Erla Jóhannesdóttir, Tækjastjóri

Ragnhildur Kjartansdóttir, Bráðaliði, heilbrigðisteymi

Viðar Garðarsson, Framkvæmdarstjóri Íshokkísambands Íslands

LEIKIR ÍSLANDS Á HM U18 KVENNA

Allir tímar miðast við íslenskan tíma:

  • Mánudagur 26. janúar: Ísland – Suður-Afríka, kl. 18:00
  • Þriðjudagur 27. janúar: Ísland – Belgía, kl. 14:30
  • Fimmtudagur 29. janúar: Ísland – Rúmenía, kl. 14:30
  • Föstudagur 30. janúar: Mexíkó – Ísland, kl. 11:00
  • Sunnudagur 1. febrúar: Taípei – Ísland, kl. 14:30

BEINAR ÚTSENDINGAR

Allir leikir mótsins eru í beinu streymi á streymisveitu Íshokkísamband Íslands og aðgengilegir fyrir áskrifendur á

 icehockeyiceland.tv

Við hvetjum alla íshokkíaðdáendur til að fylgjast með U18 kvenna landsliðinu á mótinu og styðja stelpurnar í þessari spennandi áskorun. Umfjöllun, úrslit og leikskýrslur verða birtar hér á ishokki.is eftir því sem mótið vindur fram.

Share This