Ísland tapaði 6–5 gegn Ástralíu í síðasta leik sínum á HM U20 þegar liðin mættust í lokaleiknum í Belgrade í gær. Leikurinn var hrikalega spennandi og Ísland hafði frumkvæðið fyrstu 45 mínútur leiksins. Ástralía hafði betur síðasta korterið og skoraði 4 mörk og vann því að lokum 6-5 sigur.
LEIKURINN: Ástralía 6–5 Ísland (0–2, 0–1, 6–2)
Ísland byrjaði leikinn vel og komst í 0-2 í fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta bætti Ísland við þriðja markinu og virtist vera með tögl og hagldir fram að því. Í þriðja leikhluta tókst Ástralíu hins vegar að snúa leiknum sér í hag. Ástralía byrjaði á því að koma leiknum í 2-3, en Íslendingarnir héldu nú ekki og bættu strax við tveimur mörkum og þegar korter var eftir var staðan 2-5. Ástralar gáfust ekki upp og skoruðu 4 mörk á síðustu 15 mínútum leiksins sem reyndist of mikið og þurftu strákarnir okkar að sætta sig við 6-5 tap eftir frábæra baráttu heilt yfir í leiknum.

TÖLFRÆÐI
Ísland:
- Ólafur Björgvinsson – 1/1
- Ýmir Hafliðason – 1/1
- Bjarki Jóhannsson – 1/0
- Stefán Guðnason – 1/0
- Freyr Magnússon Waage – 1/0
- Viktor Mojzyszek – 0/1
- Helgi Bjarnason – 0/1
- Pétur Egilsson – 0/1
- Hektor Hrólfsson – 0/1
- Haukur Karvelsson – 0/1
- Haukur Steinsen – 0/1
Elvar Sigurðarson – 36/42 (85,7%)

Með tapinu endar Ísland í neðsta sæti annarrar deildar B, og fellur því í þriðju deild A fyrir næsta tímabil.
Viktor Mojzyszek var valinn besti leikmaður Íslands á mótinu og er hann einn af einungis 6 leikmönnum liðsins sem verða ekki gjaldgengir á næsta ári þannig liðið kemur reynslumikið til baka á næsta ári og vonandi fer beint upp með liðið aftur.

