Úrslitakeppnin í NHL í fullum gangi!

by | 10 maí, 2026 | Fréttir

Úrslitakeppni NHL-deildarinnar árið 2026 hefur verið bæði óvænt og spennandi. Nokkur stórlið féllu snemma úr leik, þar á meðal Toronto Maple Leafs sem komust ekki einu sinni í úrslitakeppnina þetta tímabilið. Nú eru aðeins sterkustu liðin eftir í baráttunni um Stanley-bikarinn.

Í Austurdeildinni hefur Carolina Hurricanes verið langsterkasta liðið hingað til og tryggði sér sæti í úrslitum Austurdeildarinnar eftir að sópa Philadelphia Flyers út úr annarri umferðinni. Hurricanes hafa unnið alla átta leikina sína í playoffs til þessa og eru taldir líklegir til að fara alla leið.

Í Vesturdeildinni er hörð barátta milli Colorado Avalanche og Minnesota Wild, þar sem Wild náðu nýlega sínum fyrsta sigri í einvíginu eftir öflugan leik frá Kirill Kaprizov. Vegas Golden Knights eru einnig sterkir kandídatar eftir góð úrslit gegn Anaheim Ducks.

Ljóst er að úrslitakeppnin í ár hefur verið full af óvæntum úrslitum, dramatískum framlengingum og mikilli spennu. Aðdáendur íshokkís um allan heim fylgjast því grannt með því hvaða lið nær að lyfta Stanley-bikarnum í júní.

Hægt er að horfa á NHL á Viaplay

Share This