U20 hefur leik í Topp deildinni um næstu helgi – uppfært

by | 7 sep, 2026 | Landsliðsstarfið, Toppdeild Karla

U20 ára landslið Ísland mun taka þátt í Topp deild karla fram að áramótum á þessu tímabili.

Gauti Þormóðsson og Gunnlaugur Björnsson Thoroddsen þjálfarar U20 landsliðsins hafa valið þá leikmenn sem hefja leik í deildarkeppninni. Lið leikur sína fyrstu leiki í Laugardalnum gegn SR um næstu helgi. Fyrsti leikurinn er á föstudagskvöldið 11. september, klukkan 19:45 og seinni leikurinn á laugardaginn 12. september klukkan 17:45. Eftirtaldir leikmenn eru valdir í þetta verkefni.

Alex Máni Ingason
Aron Freyr Gautason
Aron Ingason
Axel Andrason
Baldur Örn Morthensen
Bjarki Jóhannsson
Bjartur Westin
Egill Þorsteinsson
Elmar Rafn Steinarsson
Elvar Ingi Sigurðarson
Elvar Örn Skúlason
Finnur Bessi Finnsson
Fjölnir Sigurjónsson
Gabríel Egilsson
Haraldur Pétur Páll Nickel
Helgi Bjarnason
Kiril A. Timashov Igorsson
Mikael Eiríksson
Rökkvi Snær Ásgeirsson
Sæmundur Egill Þorsteinsson
Stefán Guðnason
Tryggvi Páll Snævarsson
Þórir Aspar
Þorsteinn Óli Garðarsson

Myndin sem fylgir fréttinni er af U18 landsliði Íslands frá því í mars á þessu ári en á þessari mynd má finna fjölmarga af þeim leikmönnum sem boðaðir hafa verið.

Share This