Draumur Brady Tkachuk að rætast í Flórída

by | 9 sep, 2026 | NHL

Brady Tkachuk segist fullur tilhlökkunar yfir því að hefja nýjan kafla með Florida Panthers og fá loks að leika með eldri bróður sínum Matthew í NHL. Hann segir tækifærið til að elta Stanley Cup með bróður sínum og sterku liði Panthers vera draumi líkast.

Brady gekk til liðs við Florida í stórum skiptum frá Ottawa Senators 21. júní eftir átta tímabil í kanadísku höfuðborginni, þar af fimm sem fyrirliði. Hann skoraði 213 mörk og gaf 250 stoðsendingar, samtals 463 stig, í 572 leikjum fyrir Senators og var stigahæsti leikmaður liðsins á þeim tíma.

Panthers hafa komist í úrslitaeinvígi Stanley Cup þrisvar á síðustu fjórum árum og unnu bikarinn 2024 og 2025. Liðið missti hins vegar af úrslitakeppninni á síðasta tímabili eftir erfiðan vetur sem einkenndist af meiðslum og þreytu. Brady segir leikmennina ekki dvelja við fyrri titla heldur einbeita sér að því að komast aftur í fremstu röð.

Bræðurnir léku saman fyrir Bandaríkin í 4 Nations Face-Off árið 2025 og á Vetrarólympíuleikunum 2026, þar sem bandaríska liðið vann gull í karlaflokki í fyrsta sinn síðan 1980. Að fá nú að vera samherjar hjá sama NHL-liði segir Brady vera nokkuð sem þeir hefðu talið óhugsandi á uppvaxtarárunum.

Brady hefur komið sér fyrir skammt frá heimili Matthews og æfingaaðstöðu Panthers í Fort Lauderdale. Hann segir einnig spennandi að fjölskyldur þeirra og börn fái að verja meiri tíma saman, þótt íshokkíið verði ávallt í fyrsta sæti.

Æfingabúðir Florida hefjast 17. september og liðið leikur fyrsta leik tímabilsins 29. september gegn ríkjandi Stanley Cup-meisturum Carolina Hurricanes. Brady mætir síðan fyrrverandi félögum sínum í Ottawa í fyrsta sinn 21. október.

Heimild: NHL.com – B. Tkachuk says chasing Cup with brother, rest of Panthers ‘going to be awesome’, 9. september 2026.

Mynd: Brady Tkachuk í búningi Ottawa Senators í leik 9. mars 2023. Ljósmynd: Jenn G / Wikimedia Commons, CC BY-SA 2.0.

Share This