Skautafélag Akureyrar styrkti stöðu sína á toppi Topp-deildar kvenna í íshokkí með 4:0 sigri á Fjölni í Grafarvoginum í kvöld.
SA hefur nú unnið 5 af fyrstu 7 leikjunum í venjulegum leiktíma og einn til viðbótar eftir framlengingu. Eina tap liðsins var eftir framlengingu og er SA því með 18 stig eftir leikina sjö.
Við blasir að baráttan stendur á milli SR og Fjölnis um hvort liðið kemst í úrslitarimmuna á móti SA en SR er með 5 stig eftir 6 leiki og Fjölnir er með 4 stig eftir 5 leiki.
Ekkert var skorað í fyrsta leikhlutanum en Akureyringar tóku völdin í öðrum leikhluta. Herborg Geirsdóttir skoraði fyrsta markið og Sólrún Assa Arnardóttir bætti við öðru en hún skoraði tvívegis fyrir SA í kvöld.
Guðrún Ásta Valentine kom SA í 3:0 í þriðja leikhluta og Sólrún Assa batt endahnútinn á 53. mínútu.
Mörk SA: Sólrún Assa Arnardóttir 2, Herborg Geirsdóttir, Guðrún Ásta Valentine.
Stoðsendingar: Sunna Björgvinsdóttir 2, Silvía Björgvinsdóttir 2, Guðrún Ásta Valentine, Aðalheiður Anna Anarsdóttir.
Myndatexti: Sólrún Assa skoraði tvívegis fyrir SA í kvöld.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær
Leikur #3
föstudaginn 27. nóvember 2026 kl.19:45

Fjölnir
0
4

Skautafélag Akureyrar
1. Lota

#41 shawlee gaudreault

#1 cassandra goyotte


#22 karen þórisdóttir

#10 guðrún ásta valentine
2. Lota

#77 herborg geirsdottir, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir, #10 guðrún ásta valentine

#26 solrun assa arnardottir, Stoð: #12 aðalheiður anna ragnarsdottir, #91 silvia bjorgvinsdottir
3. Lota

#10 guðrún ásta valentine, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir

#26 solrun assa arnardottir, Stoð: #91 silvia bjorgvinsdottir


#68 magdalena sulova

#1 cassandra goyotte

#41 shawlee gaudreault
