Einn á einn – Helgi Ívarsson

by | 11 des, 2025 | Einn á einn, Fréttir

Næstur í einn á einn er Akureyringurinn Helgi Ívarsson. Helgi hefur verið erlendis síðan 2020, fyrstu þrjú tímabilin var hann í Svíþjóð en núna er hann á þriðja tímabilinu sínu í Þýskalandi.

-Fullt nafn: Helgi Þór Ívarsson

-Gælunafn: Thor, Freakend, Iceland, Island Boy,

-Aldur: 21

-Staða á ísnum: Markmaður

-Hvenær spilaðir þú fyrsta meistaraflokks leikinn þinn: Hef ekki enn spilað með meistaraflokki heima en fyrstu leikirnir mínir voru á þessu ári með Landsliðinu og hérna úti

Hægara sagt en gert að koma pekkinum frammhjá Helga

-Hver er og var fyrirmyndin þín:
Ég hef alltaf litið mikið upp til Marc-André Fleury. Hann virðist alltaf hafa gaman af því að spila hokkí og það smitar algjörlega út frá sér. Ég tengi mjög við þetta, því þegar ég leyfi mér njóta leiksins, þá spila ég miklu betur.
En um leið og ég gleymi því að skemmta mér og byrja að taka hlutunum of alvarlega, þá fer allt að verða erfiðara og pekkirnir byrja að fljúga fram hjá mér og ég missi alla einbeiting.

Þegar ég var yngri þá voru útlensku markmennirnir sem komu að spila fyrir SA eins og guðir fyrir mér. Fyrstur sem mér dettur í hug er Adam Beukeboom, þennan tíma sem hann spilaði með SA var nánast ekki hægt að skora, hann les leikinn sjúklega vel og er með geggjaða skauta tækni, hann var einnig geggjaður markmanns þjálfari og kenndi mér heilan helling. Núna erum við Adam báðir að spila á svipuðu leveli hérna í Þýskalandi, sem er skemmtilegt.

-Uppáhalds matur eða matsölustaður: Elska kjúklíngasalatið sem mamma gerir en á matsölustað þá væri það örugglega Bessabita Burger á Bessabita.

-Uppáhalds drykkur fyrir eða eftir leik: Drekk vatn með steinefnum fyrir æfingar og leiki en svo eftir leiki þá er það bara vatn oftast.

-Uppáhalds sjónvarpsþáttur / bíómynd: Elska Breaking Bad og uppáhalds myndin mín er Baby Driver.

-Uppáhalds tónlistarmaður eða hvaða lag kemur þér í gírinn: Elska Ásgeir og lagið nýfallið regn en til að koma mér í gírinn þá er búinn að vera að hlusta á ÞÚ ERT HÉR með Joey Christ nýlega.

-Hvaða samfélagsmiðil notar þú mest: Instagram held ég.

Tekur sig vel út í rauðu

-Hver er fyndnasti í liðinu: Ætla að segja Unnar Hafberg í Landsliðinu og Jyry Kortelainen hérna.

-Hver er verstur í að mæta á réttum tíma: Hef engan einn í huga en þá er það kannski bara ég sem er að mæta seint haha…

-Hver er með skrítnustu leikdagsrútínuna: Brett Jaeger er með skrítnustu leikdagsrútínu sem ég hef séð. Hann leggst niður með handklæði á hausnum í svona 10 mínútur og er að blasta einhverja rokktónlist í eyrun á sér.

-Hvern í liðinu myndir þú senda í Love Island: Ég væri ekkert á móti því að fara þangað, má ég velja sjálfan mig?

-Hvernig kylfu spilar þú með: Vinstri spaða P31 held að það sé markmanns curve-ið…Stendur ekki hversu mikið flex.

-Besti leikmaður sem þú hefur spilað með: Unnar Hafberg í sumarhokkí eða Philip Rießle (spilaði 5 tímabil sem kapteinn í DEL 2).

-Besti þjálfarinn sem þú hefur haft: Martin Struzinski eða Sven Valenti

-Helsta afrek á ferlinum: Silfur í Nýja-Sjálandi í fyrstu landsliðsferðinni minni.

-Hvaða hokkíreglu myndir þú breyta ef þú gætir: Trapisu reglan! Afhverju má ég ekki lengur spila pökkin í horninu?!

-Ef þú værir ekki í hokkí í hvaða íþrótt værir þú: Held ég væri markmaður í fótbolta.

-Til hvaða lands langar þig mest að fara: Hef ekki enþá farið til USA en svo er Svíþjóð geggjað þannig annaðhvort.

-Hvaða tvo liðsfélaga núverandi eða fyrverandi myndir þú taka með þér á eyðieyju – og af hverju: Ólaf Baldvin og Bergþór Bjarma örugglega. Bjarmi kann að veiða og allskonar…held hann hefði líka gott af því að fara í smá útlegð, Óli er með góðan banter og getur örugglega gert eitthvað gagn. Svo er bara gott chem á milli okkar allra (gæti jafnvel breyst í Love Island hver veit?).

Share This