SA heldur áfram að vinna í Toppdeild kvenna

by | 9 jan, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

SA hélt áfram sigurgöngu sinni í Toppdeild kvenna þegar liðið lagði Fjölni að velli með 5–2 sigri í hörkuleik í Egilshöll.

Heimakonur í Fjölni komu ákveðnar til leiks og náðu að halda leiknum í jafnvægi framan af, en reynsla og breidd SA skilaði sigrinum að lokum.

LEIKURINN: FJÖLNIR 2 – 5 SA

(0–1, 1–3, 1–1)

Fyrsti leikhlutinn var jafn en það var Guðrún Valentine sem braut ísinn á 10. mínútu með eina marki fyrsta leikhluta.

Í öðrum leikhluta sprakk leikurinn út. SA skoraði þrjú mörk á tæpum 14 mínútum – þar af tvö frá Silvíu Björgvinssdóttur, sem átti stórleik. Fjölnir náði þó að skora sitt fyrsta mark í leiknum í stöðunni 0–2 þegar Laura Murphy kom pekkinum yfir línuna.

Fjölnir gerði heiðarlega tilraun til að snúa leiknum sér í hag í þriðja leikhluta og minnkaði muninn í 2–4, en SA kláraði leikinn með marki frá Kolbrúnu Björnsdóttur undir lokin og tryggði sér þar með 5–2 sigur.

(Hafsteinn Þorsteinsson)

Tölfræði

SA:

  • Silvía Björgvinssdóttir – 2/0
  • Sólrún Arnardóttir – 1/1
  • Kolbrún Björnsdóttir – 1/1
  • Guðrún Valentine – 1/0
  • Herborg Geirsdóttir – 0/1
  • Amanda Bjarnadóttir – 0/1
  • Eyrún Garðarsdóttir – 0/1

Shawlee Gaudreault – 13/15 (86,7%)

Fjölnir:

  • Laura Murphy – 1/0
  • Elísa Sigfinnsdóttir – 0/1

Karitas Halldórsdóttir – 44/49 (89,8%)

Næsti leikur í toppdeild kvenna er næstkomandi þriðjudag þegar við fáum Reykjavíkur slag.

Share This