Það var nóg um að vera fyrir norðan um helgina þar sem SA, SR og Fjölnir öttu kappi í þremur leikjum í Toppdeild karla. Áhorfendur fengu að upplifa allt sem íshokkí hefur upp á að bjóða – 16 mörk í einum leik, snúning á leikjum, hörkuvarnir og háspennu allt til loka.
Leikur 1 – SA 5 : 3 Fjölnir (9. janúar 2026)
(2–0, 2–3, 1–0)

“Eigum við að vera vinir?” (Ólafur Þorgrímsson)
SA byrjaði ofurhelgina með 5–3 sigri á Fjölni. Heimamenn komust í 2–0 í fyrsta leikhluta, en Fjölnir svaraði með þremur mörkum í öðrum hluta og minnkaði muninn í 4–3. SA kláraði þó leikinn með marki í þriðja leikhluta og tryggði sér stigin 3.
Tölfræði
SA:
- Harrison Nagel 2/0
- Arnar Kristjánsson 0/2
- Matthías Stefánsson 1/0
- Orri Blöndal 1/0
- Pétur Sigurðsson 1/0
- Andri Mikaelsson 0/1
- Bjarmi Kristjánsson 0/1
- Heiðar Jóhannsson 0/1
- Marek Vybostok 0/1
Jakob Johannesson – 16/19 (84,2%)
Fjölnir:
- Hilmar Sverrisson 1/0
- Jere Koikkalainen 1/0
- Falur Guðnason 1/0
- Pétur Egilsson 0/1
- Sturla Snorrason 0/1
- Baldur Mortenssen 0/1
Tuomas Heikkonen – 39/44 (88,6%)

Liðugur er hann, Tuomas fékk á sig 84 skot yfir helgina (Ólafur Þorgrímsson)
Leikur 2 – SR 12 : 4 Fjölnir (10. janúar 2026)
(4–1, 5–0, 3–3)
SR setti tóninn strax í fyrsta leikhluta með 4 mörkum og hélt áfram með fimm mörk í öðrum hluta. Fjölnir náði að skora þrjú í síðasta leikhluta, en leikurinn var löngu búinn að spilast. SR fékk 12 mörk frá 9 leikmönnum og sýndi stórkostlega sóknartakta.

Tölfræði
SR:
- Axel Orongan 3/1
- Alex Sveinsson 1/3
- Heiðar Kristveigarson 2/1
- Níels Hafsteinsson 1/2
- Hákon Magnússon 1/1
- Haukur Karvelsson 1/1
- Styrmir Maack 1/1
- Eduard Kascak 1/1
- Sölvi Atlason 0/2
- Kári Arnarson 0/2
- Gunnlaugur Þorsteinsson 0/2
- Ævar Arngrímsson 1/0
- Daniel Otuoma 0/1
Ævar Björnsson – 26/30 (86,7%)
Fjölnir:
- Jere Koikkalainen 0/2
- Falur Guðnason 1/0
- Úlfar Andrésson 1/0
- Birkir Einisson 1/0
- Hilmar Sverrisson 0/1
- Hektor Hrólfsson 0/1
- Baldur Mortensen 0/1
Tuomas Heikkonen – 28/40 (70,0%)

Alex orðinn vanur því að fagna eftir 5 stiga helgi (Ólafur Þorgrímsson)
Leikur 3 – SA 2 : 3 SR (11. janúar 2026)
(2–2, 0–1, 0–0)
Sunnudagsleikurinn var meistaraslagur milli SA og SR og endaði með dramatískum 3–2 útisigri SR. SR skoraði sigurmarkið í lok annars leikhluta og hélt haus þrátt fyrir áhlaup SA í þriðja.

Það hefur ekki verið gott að vera fyrir þessu skoti (Ólafur Þorgrímsson)
Tölfræði
SR:
- Hákon Magnússon 2/0
- Kári Arnarson 0/2
- Alex Sveinsson 0/1
- Styrmir Maack 0/1
- Daniel Otuoma 0/1
Ævar Björnsson – 22/24 (91,7%)
SA:
- Atli Sveinsson 1/0
- Matthías Stefánsson 1/0
- Bjarmi Kristjánsson 0/1
Robert Steingrímsson – 13/16 (81,3%)

Ævar kláraði helgina með 88,8% markvörslu, hæðst allra markvarða (Ólafur Þorgrímsson)
SR fara því með 6 stig út úr helginni, SA 3 á meðan Fjölnir fer heim með sárt ennið. Þriðja og síðasta ofur helgin verður í lok febrúar. Stutt hlé er komið á deildina núna þar sem U20 ára landsliðið heldur erlendis á HM.
Næstu leikur í Topp deild karla er því þriðjudaginn 27. janúar þegar við fáum Reykjavíkur slag.
