SR tekur fyrsta leik sinn á árinu

by | 14 jan, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Það var líf og fjör í Skautahöllinni í Laugardal þegar SR og Fjölnir mættust í Toppdeildar kvenna. Heimakonur í SR náðu að landa mikilvægu 2–0 sigri eftir skipulagðan varnarleik og góðan aga í öllum svæðum vallarins.

Leikurinn: SR 2-0 Fjölnir (1-0, 1-0, 0-0)

Fyrra mark leiksins kom í fyrsta leikhluta þegar Ragnhildur Kjartansdóttir nýtti sér power play tækifæri á 8. mínútu og setti pökkinn í netið eftir sendingar frá Bríeti Friðjónsdóttur og Berglindi Leifsdóttur.

Gunnborg á fleygi ferð (Hafsteinn Þorsteinsson)

Seinna markið kom rétt fyrir lok annars leikhluta þegar Gunnborg Jóhannsdóttir skoraði með stoðsendingu frá Maríu Guðrúnu Eiríksdóttur. Það mark var mikið áfall fyrir Fjölni sem hafði verið að ná vopnum sínum á þeim tímapunkti.

Tölfræði

SR:

  • Bríet Friðjónsdóttir – 1/1
  • Ragnhildur Kjartansdóttir – 1/0
  • Berglind Leifsdóttir – 0/1
  • María Eiríksdóttir – 0/1

Julianna Thomson – 13/13 (100%)

Fjölnir:

Karítas Halldórsdóttir – 19/21 (90,5%)

(Hafsteinn Þorsteinsson)

Með sigrinum er það ljóst hvaða 2 lið spila til úrslita í vor en það eru SA og SR. En er þó 8 leikir eftir af deildinni og næsti er á Akureyri á laugardaginn þegar SR kíkir í heimsókn norður.

Share This