SA styrkir stöðu sína á toppnum

by | 19 jan, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Það var hörkuleikur í Skautahöllinni á Akureyri um síðastliðna helgi þegar SA og SR mættust í Toppdeild kvenna. SA fór með sigur af hólmi 3–1 eftir jafnan og baráttumikinn leik

LEIKURINN: SA 3–1 SR (1–0, 1–1, 1–0)

Fyrsta mark leiksins kom snemma í fyrsta leikhluta þegar Sólrún Arnardóttir skoraði á 3. mínútu eftir stoðsendingar frá Silvíu Björgvinsdóttur og Amöndu Bjarnadóttur. Það reyndist eina mark fyrstu lotu og SA fór með 1–0 forystu í hlé.

Alltaf mikil barátta í Sólrúnu Arnardóttur (Ólafur Þorgrímsson)

Í öðrum leikhluta náði SR að jafna leikinn þegar Berglind Rós Leifsdóttir skoraði á 23. mínútu. Rúmum tíu mínútum síðar komst SA aftur yfir þegar Silvía Björgvinsdóttir skoraði annað mark liðsins og staðan var því 2–1 fyrir SA eftir tvo leikhluta.

Lokamark leiksins kom á 46. mínútu þegar Amanda Bjarnadóttir kom SA í 3–1 eftir stoðsendingar frá Silvíu Björgvinsdóttur og Sólrúnu Arnardóttur. SR tók markvörðinn út undir lokin en án árangurs og SA tryggði sér mikilvægan sigur. Sigurinn styrkir stöðu SA á toppi deildarinnar.

(Ólafur Þorgrímsson)

TÖLFRÆÐI

SA:

  • Silvía Björgvinsdóttir – 1/2
  • Sólrún Arnardóttir – 1/1
  • Amanda Bjarnadóttir – 1/1
  • Heiðrún Rúnarsdóttir – 0/1
  • Anna Ágústsdóttir – 0/1

Shawlee Gaudreault – 26/27 (96,3%)

SR:

  • Berglind Rós Leifsdóttir – 1/0
  • Teresa Snorradóttir – 0/1
  • Birta Hafsteinsdóttir – 0/1

Julianna Thomson – 27/30 (90,0%)

Shawlee varði virkilega vel í marki SA um helgina (Ólafur Þorgrímsson)

Núna er komið stutt hlé á Toppdeild kvenna þar sem U18 ára landsliðs kvenna heldur til Suður Afríku eftir um viku og næsti leikur því ekki fyrr en 6. febrúar þegar Fjölnir fær SR í heimsókn.

Share This