Ísland vann mikilvægan 4–2 sigur gegn Serbíu í Belgrad í gærkvöldi. Ísland sneri leiknum sér í hag eftir jafna byrjun og tryggði sér sigur með sterkum þriðja leikhluta.
LEIKURINN: Ísland 4–2 Serbía (0–1, 1–0, 3–1)
Serbía komst yfir í fyrsta leikhluta, en Ísland jafnaði í öðrum leikhluta þegar Haukur Karvelsson skoraði. Í þriðja leikhluta náði Ísland yfirhöndinni þegar Hektor Hrólfsson, Pétur Egilsson og Alex Ingason skoruðu þrjú mörk og tryggðu íslenskan sigur. Elvar Sigurðsson var frábær í íslenska markinu með 93,8% markvörslu sem skilaði honum manni leiksins.

Hægara sagt en gert að koma pekkinum frammhjá Elvari í gær
TÖLFRÆÐI
Ísland:
- Haukur Karvelsson – 1/1
- Haukur Hrólfsson – 1/1
- Pétur Egilsson – 1/0
- Alex Ingason – 1/0
- Bjarki Jóhannsson – 0/1
- Bjartur Westin – 0/1
- Freyr Waage – 0/1
- Helgi Bjarnason – 0/1
- Viktor Mojzyszek – 0/1
Elvar Sigurðarson – 30/32 (93,8%)
Næsti leikur Íslands er á morgun, laugardag, klukkan 11:30 gegn Ástralíu. Enn er allt opið í riðlinum, með réttum úrslitum geta þeir ennþá náð í brons á meðan tap sendir þá niður um deild, þið viljið ekki missa af þessum leik.
