Það var erfiður leikur í gær hjá stelpunum okkar. Eftir að hafa verið með 1-0 forystu rúmlega hálfan leikinn þá töpuðum við leiknum 1-5.
Svona eru þessar blessuðu íþróttir stundum, Að lið ná ekki vopnum sínum og ná ekki að sýna sínar bestu hliðar gerist bara, og það var okkar hlutskipti í gær. Svo er auðvita hægt að nota ýmsar skýringar eða afsakanir fyrir því af hverju ekki fór betur. Það er ljóst að stúlkurnar okkar voru ekki að spila með þeirri krafti og ástríðu sem ég hef séð að þær eiga til. Vonandi ná þær og þjálfarateymið að sýna betur hvað býr í liðinu í mikilvægum leik gegn Mexikó í dag sem hefst klukkan 13:00 að staðartíma en klukkan 11:00 heima.
Leikurinn í tölum.
Úrslit 1-5 (1:0, 0:1, 0:4)
Skot á mark 15:25 (5:9, 5:9, 5:7)
Brottvísanir í mínútum, Ísland 8, Rúmenía 4
Mark/stoðsending
Eyrún Garðarsdóttir 1/0
Kristína Davíðsdóttir 0/1
Besti leikmaður íslands í leiknum var valin Magdalena Sulova
Markaskorarinn

Stoðsendingin

Maður leiksins

