Og þá var kátt í höllinni!

by | 30 jan, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Fyrr í dag lögðu U18 stúlkurnar okkar Mexíkó með 5 mörkum gegn engu. Það var mikil gleði í hópnum enda liðið að stíga upp úr svæsnri matareitrun sem hefur haft mikil áhrif á leik þeirra síðustu 2 leiki. Nú var orkan komin, gleðin og krafturinn skein úr hverju andliti.

Það var allt annað að sjá til liðsins sem byrjaði frekar rólega og fékk fljótlega á sig mark. Þannig var staðan í lok leikhlutans Mexíkanar yfir 1-0. Það var síðan eins og annað lið hefð stigið inn á ísinn við upphaf annars leikhluta. Kristína Davíðsdóttir braut ísinn eftir stoðsendingu frá Ragnheiði Alís og Bríet Fríðjóns og þá var eins og skrúfað hefði verið frá krana. Ein og hálf mínúta leið þar til pökkurinn þandi möskvana á ný. Kolbrún Björnsdóttir skoraði með stoðsendingum frá Friðriku Rögnu og Sólrúnu Össu. Áhorfendur þurftu að bíða í rúmar fimm mínútur eftir marki númer 3. Það skoraði Friðrika Ragna Magnúsdóttir eftir stoðsendingu frá Sólrúnu Össu. Friðrika Ragna setti svo annað mark fyrir lok 2. leikhluta að þessu sinni með stoðsendingu frá Kolbrúnu og Freyju Sigurjónsdóttur.

Í Þriðja leikhluta voru ekki liðnar 3 mínútur þegar Kolbrún skoraði 5. mark okkar með stoðsendingum frá Friðriku og Össu. Mexiko komst ekkert áfram gegn okkur í þessum ham. Ljóst var á þessum leik að liðið er að hrista af sér óværuna þó enn séu ekki allir búnir að ná sér.  Endanleg úrslit 1-5 fyrir Íslandi.

Á myndinni hér að ofan má sjá liðið taka hraustlega undir þjóðsöngin.

Leikurinn í tölum. 

Mörk, Mexikó:Ísland 1:5 (1:0, 0:4, 0:1)

Skot á mark, 20:35 (5:10, 10:15, 5:10)

Mörk/stoðsendingar,
Friðrika Ragna Magnúsdóttir 2/2
Kolbrún Björnsdóttir 2/1
Kristína Davíðsdóttir 1/0
Sólrún Assa Arnardóttir 0/3
Bríet Friðjónsdóttir 0/1
Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 0/1
Freyja Sigurjónsdóttir 0/1

Markaskorarar

Stoðsendingar

Maður leiksins

Myndir úr leiknum

 

Share This