SA var ekki í miklum vandræðum með leikinn þegar Fjölnir kom í heimsókn í Skautahöllina á Akureyri og vann öruggan 6–0 sigur. Heimamenn voru sterkari í öllum leikhlutum og náðu snemma tökum á leiknum.
LEIKURINN: SA 6–0 FJÖLNIR (2–0, 3–0, 1–0)
SA komst yfir á 5. mínútu þegar Unnar Rúnarsson skoraði í fimm á þrjá. Skömmu síðar bætti SA við öðru marki þegar Jóhann Leifsson kom pekkinum í netið og staðan 2–0 eftir fyrsta leikhluta.

Unnar var með fjögur stig í leiknum
Í öðrum leikhluta hélt SA áfram að keyra upp tempóið. Unnar Rúnarsson skoraði sitt annað mark og kom SA í 3–0, áður en Uni Blöndal bætti við fjórða markinu. Undir lok leikhlutans gerði SA svo út um leikinn með marki í yfirtölu þegar Heiðar Jóhannsson skoraði og staðan orðin 5–0.
SA innsiglaði síðan sigurinn í þriðja leikhluta þegar Hafþór Sigrúnarson skoraði sjötta og síðasta mark leiksins og 6-0 sigur niðurstaðan.
TÖLFRÆÐI
SA:
• Unnar Rúnarsson – 2/2
• Ormur Jónsson – 0/3
• Uni Blöndal – 1/1
• Jóhann Leifsson – 1/1
• Hafþór Sigrúnarson – 1/1
• Robbe Delport – 0/2
• Heiðar Jóhannsson – 1/0
• Andri Mikaelsson – 0/1
• Harrison Nagel – 0/1
Jakob Jóhannesson – 10/10 (100%)
Fjölnir:
Tuomas Heikkonen – 49/55 (89,1%)

Næsti leikur í Toppdeild Karla er næstkomandi laugardag, þegar SR fær SA í heimsókn.
