Undir 18 ára landslið pilta tapaði úrslitaleik um gull í framlengdum leik sem leikin var í Sarajevó í Bosníu Hersegóvínu í gærkvöldi, en Tælendingar unnu okkur með gullmarki í framlengingu eftir taugatitring og afskaplega jafnan og spennandi leik.
Drengirnir stóðu sig frábærlega á mótinu og voru hársbreidd frá því að vinna og fara upp um styrkleikaflokk. Megin þorri liðsins eru ungir leikmenn sem eiga eftir að reyna við gullið á ný á næsta tímabili. Það er bara hægt að láta sér hlakka til.
Nokkuð bras var í morgun þegar liðið átti að leggja af stað heim en Croatian Airways felldi niður flug þeirra og vegna þess er ekki von á hópnum heim fyrr en á morgun laugardaginn 21. febrúar 2026
Select Page
