Ofurhelgi í Toppdeild kvenna um helgina!

by | 20 feb, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Um helgina er spiluð ofurhelgi í Toppdeild kvenna. Í kvöld föstudagskvöldið 20. febrúar eigast við Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar sem leika í Laugardalnum og hefst leikurinn klukkan 19:45. Á morgun laugardag leika svo Fjölnir og Skautafélag Akureyrar í Egilshöllinni og hefst sá leikur klukkan 16:45. Ofurhelginni lýkur svo á sunnudagskvöld þegar Fjölnir tekur við nágrönnum sínum úr Skautafélagi Reykjavíkur og hefst sá leikur klukkan 20:25.

Heil umferð í Toppdeild kvenna á 3 dögum, þetta er veisla fyrir hokkíáhugafólk.

Share This