Skautafélag Reykjavíkur Toppdeildarmeistari karla 2026

by | 1 mar, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Eftir háspennuleik liðanna, Skautafélags Reykuavíkur og Skautafélags Akureyrar, í gær (laugardaginn 28. febrúar) var ekki við öðru að búast af liðunum en að þau kæmu klár til leiks í kvöld, enda allt undir.  Deildarmeistaratitill og heimaleikjaréttur í Úrslitakeppninni sem hefst 10. mars næstkomandi.  Fyrir helgina munaði ekki miklu á þessum liðum en SR var með 32 stig en SA með 31 stig.  Svo eftir leikinn í gær, sem endaði í framlengingu, voru SR-ingar með 34 stig og SA með 32 stig.  Þannig að um var að ræða tækifæri fyri bæði lið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Toppdeild karla 2026.  En til þess þá varð SA að vinna leikinn í venjulegum leiktíma til að fanga öll stigin 3.

Mynd Hafsteinn Snær

Mynd Hafsteinn Snær

Fyrsta lota

Leikurinn hófst af krafti og bæði lið voru mætt þarna til að spila íshokkí af krafti og gæðum.  Færin létu ekki á sér standa og oft mátti ekki miklu muna að annað hvort liðið næði að skora fyrsta mark leiksins.  Kári Arnarsson var kræktur niður í einu gegnumbrotinu og dómari leiksins dæmdi réttilega víti sem Kári tók en náði ekki að nýta það tækifæri til að koma SR yfir í leiknum.  Leikurinn hélt áfram að og það var svo Arnar Kristjánsson sem kom gestunum frá SA yfir með prýðisgóðu marki þegar rétt 6 mínútur voru eftir af 1. lotu.  Staðan 0 – 1 fyrir SA þegar liðin gengu til búningsklefa.

Önnur lota

Greinilegt var í upphafi annarar lotu að Milos Racansky hafði lesið sínum mönnum léttan pistil inn í klefa því að SR-ingar komu mjög ákveðnir til leiks og Kári Arnarsson skorði fyrir SR úr frákasti sem kom frá skoti hjá Strymi Maack.  Staðan orðin 1 – 1.  Stuttu síðar nældi markaskorarinn Kári Arnarsson sér í tveggja mínútna refsingu sem SA Víkingar náðu að nýta til hins ýtrasta þegar Robbe Delport skoraði sannfærandi mark á yfirtölunni.  Ævar Arngrímsson jafnaði svo fyrir SR rétt rúmlega mínútu síðar skoraði Alex Máni Sveinsson og jók enn á forystu SR í leiknum.  Hafþór Sigrúnarson skorði mikilvægt jöfnunarmark fyrir SA eftir prýðilega vel spilað “power-play”.  Í lotunni voru leikmenn SR iðnir við það að láta reka sig útaf en SR-ingar tóku út 10 refsimínútur á meðan SA fékk 2 mínútur í refsingu í annari lotunni.  Þegar rétt um 45 sekúndur lifðu lotuna, og SR-ingar mann færri á ísnum, kom ein rosalegasta stoðsending sem sést hefur frá Þorgils Eggertsyni djúpt neðan úr svæði SR og alla loftleiðina á fjær-bláu línuna þar sem Alex Máni Sveinsson greip pökkinn með kylfunni (eins og fyrir galdur) og komst inn einn á móti Róberti Steingrímssyni, markmanni SA, og náði að smeygja pekkinum laglega fram hjá honum og í markið.  Staðan því 4 – 3, SR í vil, þegar liðin gengu til búningsklefa fyrir þriðju lotuna.

Mynd Hafsteinn Snær

Þriðja lota

Það var greinilegt að liðin ætluðu ekkert að slá af þegar þriðja lotan hófst og átökin mikil.  Þegar þriðja lotan var rétt hálfnuð nældu SR-ingar sér í tvo refsidóma á sama tíma og SA-Víkingar komnir í ákjósanlegt færi að geta spilað 5 á 3 í heilar 2 mínútur.  Robbe Delport náði að nýta færið sitt vel og jafnaði leikinn fyrir SA-Víkinga.  Leikurinn hnífjafn, 4 – 4, og allt í járnum og SA-Víkingar farnir að sjá möguleikann á því að geta mögulega tryggt sér deildarmeistaratitilinn.  Þær voru jukust allhressilega þegar innan við mínúta lifið lotunnar þegar Styrmir Maack og Níels Hafsteinsson fengu sinn hvorn refsidóminn í sama stoppi.  SA-Víkingar komnir með gullið tækifæri til að skora markið sem mundi skera úr um hvort liðið yrði deildarmeistari úr þessum leik.  Uppkast í varnarsvæði SR og þjálfari SA-Víkinga, Richard Hartman, kippti markmanni sínum útaf til að auka enn frekar á sóknarþungann, þá með 6 útispilandi leikmenn á móti 3 SR-ingum sem stóðu varnar-vaktina.  En allt kom fyrir ekki og þrátt fyrir þó nokkur fín skot á mark SR-inga náðu þeir bláklæddu að verjast þessari árás og lotan rann sitt skeið.  Niðurstaðan 4 – 4 og leikurinn fór í framlengingu.

Mynd Hafsteinn Snær

Framlengingin

Þar sem þeir Níels Hafsteinsson og Styrmir Maack sátu ennþá í refsiboxinu eftir refsingarnar í þriðjulotu byrjuðu liðin framlenginguna 5 SA-Víkingar á móti 3 SR-ingum.  Þannig mundi það vera í rétt rúma mínútu af framlengingunni.  SA-Víkingar náðu ekki að nýta þessa yfirtölu nægilega vel en áttu samt nokkrar góðar sóknir að marki SR-inga.  Ekkert mark var skoraði í framlengingu og þá var gripið til vítakeppni.

Vítakeppnin

SA-Víkingar unnu hlutkesti dómara um hvort liðið mundi byrja vítakeppnina.  Jóhann Már Leifsson (SA) byrjaði vel og skoraði fram hjá Jóhanni Björgvini Ragnarssyni í marki SR.  Ævar Arngrímsson fylgdi á eftir og skoraði sannfærandi fyrir SR.  Robbe Delport (SA), Hákon Marteinn Magnússon (SR) og Unnar Hafberg Rúnarsson (SA) náðu ekki að nýta sín víti en Alex Máni Sveinsson kórónaði sinn leik með góðu marki úr sínu víti og sett pressu á SA-Víkinga.  Heiðar Jóhannsson (SA) reyndi að jafna metin fyrir SA en skot hans fór rétt framhjá.  Þar var komið kjörið tækifæri fyrir SR að sigra leikinn ef þeir gætu skorað úr næsta víti sem Þorgils Eggertsson tók og skoraði afar sannfærandi með bylmingsskoti í mark SA.  Fleiri víti þurfti því ekki til og SR því Toppdeildarmeistari 2026.

Helgi Páll Þórisson, formaður ÍHÍ, réttir Kára Arnarssyni, fyrirliða SR-inga, deildarmeistarabikarinn. Mynd Hafsteinn Snær.

 

Share This