SR vann dramatískan 6-5 sigur á SA eftir framlengingu í fyrsta leik úrslitaeinvígis Toppdeildar karla í Skautahöllinni í Laugardal á þriðjudagskvöld.
Leikurinn var sannkallaður rússíbani þar sem SA náði þriggja marka forystu snemma leiks en SR svaraði með sterkri endurkomu og tryggði sér að lokum sigurinn í framlengingu.
LEIKURINN:
SA byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 0-3 forystu í fyrsta leikhluta. Andri Mikaelsson opnaði markareikninginn og skömmu síðar bættu Jóhann Leifsson og Harrison Nagel við mörkum fyrir norðanmenn.
SR svaraði hins vegar strax í öðrum leikhluta. Axel Orongan minnkaði muninn í power play en rétt fyrir lok leikhlutans kom Arnar Kristjánsson stöðunni í 1-4.
Í þriðja leikhluta komust gestirnir í 1-5 forystu þegar Unnar Rúnarsson skoraði, en SR neitaði að gefast upp.
Eduard Kascak, Þorgils Eggertsson, Níels Hafsteinsson og Sölvi Atlason skoruðu næstu 4 mörk leiksins á 8 mínútna kafla og tryggðu framlengingu.
Í framlengingunni fékk SR svo tækifæri í power play og Axel Orongan skoraði sigurmarkið eftir einungis 58 sekúndur.

Hér má sjá mynd eftir Bjarna Baldursson af marki Eduard Kascak
Fyrirliðinn fylgdist með frá bekknum
Fyrirliði SR, Kári Arnarsson, tók ekki þátt í leiknum vegna meiðsla en fylgdist með liðsfélögum sínum frá bekknum.
Aðspurður hvað hefði breyst þegar SR náði að snúa leiknum við sagði hann:
„Erfitt að segja frá bekknum en ég myndi segja að við hættum að brjóta af okkur og byrjuðum loksins að spila sem ein heild. Fengum eitt mark og þá kviknaði á strákunum.“
Kári sagði stöðu sína enn óljósa en hann fer í myndatöku síðar í vikunni.
„Get voða lítið sagt með hendina í þessu augnabliki, fer í myndatöku í vikunni og þá veit ég meira. Vonandi næ ég að spila, get ekki útilokað neitt.“
Hann segir liðið nú þegar einbeita sér að næsta leik:
„Beint að undirbúa næsta leik bæði andlega og líkamlega. Þurfum aðeins að fínpússa nokkur atriði en annars bara halda áfram að gera það sem við erum búnir að vera að gera, það hefur virkað hingað til.“
Þegar hann var spurður hvernig það hefði verið að horfa á leikinn frá bekknum svaraði hann léttur:
„Kortisólið var hærra en vanalega.“

(Hafsteinn Þorsteinsson)
Framhaldið
Næsti leikur liðanna fer fram í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld klukkan 19:30, þar sem SA reynir að jafna einvígið.
TÖLFRÆÐI
SR:
- Níels Hafsteinsson – 1/3
- Axel Orongan – 2/1
- Eduard Kascak – 1/1
- Sölvi Atlason – 1/1
- Hákon Magnússon – 0/2
- Þorgils Eggertsson – 1/0
- Ævar Angrímsson – 0/1
- Heiðar Kristveigarson – 0/1
- Styrmir Maack – 0/1
Jóhann Björgvin Ragnarsson 14/16 (87,5%)
Ævar Björnsson 9/12 (75%)
SA:
- Andri Mikaelsson – 1/2
- Hafþór Sigrúnarsson – 0/3
- Jóhann Leifsson – 1/1
- Ormur Jónsson – 0/2
- Harrison Nagel – 1/0
- Arnar Kristjánsson – 1/0
- Unnar Rúnarsson – 1/0
Jakob Jóhannesson 25/31 (80,6%)

(Hafsteinn Þorsteinsson)
