SR vann sannfærandi 5–1 sigur á SA í öðrum leik úrslitaeinvígis Toppdeildar karla þegar liðin mættust í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld. Með sigrinum hefur SR tekið 2–0 forystu í einvíginu.
Gestirnir úr Reykjavík lögðu grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta og héldu svo forystunni allan leikinn.
LEIKURINN
SR byrjaði leikinn af krafti og náði tveggja marka forystu í fyrsta leikhluta. Axel Orongan kom gestunum yfir í power play eftir sendingu frá Nielsi Hafsteinssyni, áður en Styrmir Maack tvöfaldaði forystuna með marki sem Þorgils Eggertsson lagði upp.

Axel Orongan fagnar marki sýnu (Ólafur Þorgrímsson)
SA minnkaði muninn snemma í öðrum leikhluta þegar Ormur Jónsson skoraði og staðan varð 2–1. SR svaraði þó fljótt þegar Heiðar Örn Kristveigarson skoraði og kom SR aftur tveimur mörkum yfir.
Í þriðja leikhluta bættu gestirnir svo við tveimur mörkum. Hákon Magnússon gerði bæði mörkin og það fyrra eftir sex mínútna leik og undir lokin innsiglaði hann síðan sigurinn með marki í autt netið.
Markvörður SR, Jóhann Björgvin Ragnarsson, átti frábæran leik og varði 42 skot af 43 í markinu.

Erfitt reyndist að koma pekkinum frammhjá Jóhanni í markinu í gær (Ólafur Þorgrímsson)
Staðan í einvíginu
SR leiðir einvígið nú 2–0 og ljóst að Akureyringar eru með bakið upp við vegg eins og stendur.
Næsti leikur fer fram í Skautahöllinni í Laugardal núna á laugardaginn klukkan 17:45 þar sem SA þarf sigur til að halda lífi í einvíginu.
Móralinn er góður, það er karakter í liðinu
Aðstoðarfyrirliði SA, Heiðar Jóhannsson er bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir að vera komin með bakið upp við vegg.
Aðspurður hvað væri að klikka sagði hann:
„Í fyrstu tveimur leikjunum höfum við ekki alveg náð að spila okkar leik, höfum verið að fá á okkur of marga dóma. Einnig erum við ekki að nýta færin okkar næginlega vel þegar við fáum þau“
Heiðar sagði móralinn góðan þrátt fyrir stöðuna í einvíginu.
„Mórallinn er bara mjög góður, auðvitað er þetta mikil svekkelsi hvernig fyrstu tveir leikirnir fóru, en það er karakter í liðinu og við höfum allir fulla trú á því að við náum að klára þessa þrjá leiki sem eftir eru.“
TÖLFRÆÐI
SA:
- Ormur Jónsson – 1/0
- Jóhann Leifsson – 0/1
Róbert Steingrímsson 20/24 (83,3%)
SR:
- Hákon Magnússon – 2/0
- Axel Orongan – 1/1
- Heiðar Örn Kristveigarson – 1/1
- Styrmir Maack – 1/0
- Þorgils Eggertsson – 0/1
- Niels Hafsteinsson – 0/1
- Haukur Karvelsson – 0/1
Jóhann Björgvin Ragnarsson 42/43 (97,7%)

(Ólafur Þorgrímsson)

