SR vann 2–0 sigur á Fjölni í síðasta leik deildarkeppni Toppdeildar kvenna þegar liðin mættust í Egilshöll á föstudagskvöld.
Gestirnir úr Laugardalnum skoruðu eitt mark í fyrsta leikhluta og bættu svo við öðru í þriðja leikhluta og tryggðu sér þannig sigurinn í leik þar sem markverðir beggja liða áttu flottan leik.
Með leiknum lauk deildarkeppninni og tekur nú við úrslitakeppni sem hefst næstu helgi.
LEIKURINN
SR komst yfir á 10. mínútu fyrsta leikhluta þegar María Kristjánsdóttir skoraði eftir stoðsendingar frá Elfi Einarssdóttur og Emilíu Steinarsdóttur.
Hin unga Bríet Óladóttir byrjaði leikinn í marki Fjölnis og var þetta hennar fyrsti leikur í markinu. Stuttu eftir markið kom hinnsvegar reynsluboltinn Karítas Halldórsdóttir í markið og kláraði leikinn.
Fjölnir fékk nokkur góð tækifæri til að jafna leikinn en Julianna Thomson stóð vaktina vel í marki SR og hélt hreinu.
Í þriðja leikhluta bættu SR svo við öðru marki þegar Ragnhildur Kjartansdóttir skoraði eftir sendingar frá Berglindi Leifsdóttur og Örnu Friðjónsdóttur og innsiglaði þar með sigurinn.
Markvörður Fjölnis, Karitas Halldórsdóttir, átti frábæran leik og varði 38 skot þrátt fyrir tapið.

Hægara sagt en gert að koma pekkinum frammhjá Karítas í markinu (Bjarni Baldursson)
TÖLFRÆÐI
Fjölnir:
Karitas Halldórsdóttir 38/39 (97,4%)
Bríet Jara Óladóttir 3/4 (75%)
SR:
- María Kristjánsdóttir – 1/0
- Ragnhildur Kjartansdóttir – 1/0
- Berglind Leifsdóttir – 0/1
- Elfur Einarsdóttir – 0/1
- Arna Fríðjónsdóttir – 0/1
- Emilía steinarsdóttir – 0/1
Julianna Thomson 15/15 (100%)

Julianna verðir lykil leikmaður hjá SR í úrslita keppninni (Bjarni Baldursson)
Úrslitakeppnin framundan
Með þessum leik lauk deildarkeppni Toppdeildar kvenna og tekur nú við úrslitakeppni. SA og SR mætast í rimmunni að þessu sinni og má búast við jöfnum og spennandi leikjum.
Fyrsti leikur úrslitaeinvígisins fer fram á Akureyri laugardaginn 21. mars klukkan 16:45.
Leikur #22
föstudaginn 13. mars 2026 kl.19:45

Fjölnir
0
2

Skautafélag Reykjavíkur
1. Lota

#80 julianna thomson

#1 bríet jara óladóttir

#3 maría sól kristjánsdóttir, Stoð: #81 emilía rán steinarsdóttir, #38 elfur íris einarsdóttir

-

#25 elín darko
2. Lota

#5 inga rakel aradóttir

#43 flosrun johannesdotti
3. Lota

#16 ragnhildur kjartansdottir, Stoð: #21 berglind rós leifsdóttir, #10 arna björg friðjónsdóttir

#27 karitas halldorsdottir

#80 julianna thomson

