SR jafnaði úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í 1–1 með dramatískum 2–1 sigri á SA eftir vítakeppni í Skautahöllinni í Laugardal á þriðjudagskvöld.
Leikurinn var afar jafn og spennandi þar sem bæði lið fengu færi til að klára leikinn í venjulegum leiktíma og framlengingu, en að lokum þurfti vítakeppni til að knýja fram úrslit.
LEIKURINN
SR byrjaði leikinn betur og komst yfir á 13. mínútu þegar Arna Friðjónsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins eftir stoðsendingar frá Friðriku Magnúsdóttur og Kristínu Ngoc.
Leikurinn jafnaðist út eftir þetta og bæði lið spiluðu agaðan varnarleik þar sem markverðir beggja liða áttu sterkan leik.
SA náði að jafna í þriðja leikhluta þegar Herborg Geirsdóttir skoraði eftir stoðsendingu frá Kolbrúnu Björnsdóttur og tryggði spennandi lokakafla.

Berglind Leifsdóttir (Hafsteinn Þorsteinsson)
Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingu þrátt fyrir mikið um færi á báða vegu og því þurfti að grípa til vítakeppni.
Þar reyndust heimakonur sterkari og tryggðu sér sigurinn þegar Friðrika Magnúsdóttir skoraði sigurmarkið í vítakeppninni.
Markvörður SR, Julianna Thomson, átti frábæran leik og varði 29 skot, á meðan Shawlee Gaudreault var einnig sterk með 22 vörslur.
TÖLFRÆÐI
SR:
- Friðrika Magnúsdóttir – 1/1
- Arna Friðjónsdóttir – 1/0
- Kristína Ngoc – 0/1
Julianna Thomson 29/30 (96,7%)
SA:
- Herborg Geirsdóttir – 1/0
- Kolbrún Björnsdóttir – 0/1
Shawlee Gaudreault 22/23 (95,7%)

Julianna átti frábæran leik í markinu (Hafsteinn Þorsteinsson)
Fyrirliðinn: „Mikilvægt að jafna einvígið strax“
Fyrirliði SR, Inga Rakel Aradóttir, var ánægð með hvernig liðið svaraði eftir tap í fyrsta leik.
„Það breyttist ekkert mikið þannig séð milli leikja, við sáum í síðasta leik að við getum alveg unnið þær og við gerðum það í gær.“
Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að jafna einvígið og tryggja annan leik í Laugardalnum:
„Það er mjög gott að spila annan leik heima, geggjaður stuðningur úr stúkunni sem gaf okkur alveg helling en við þurftum líka alltaf annan heimaleik til að taka titilinn eftir tapið fyrir norðan og mikilvægt að jafna einvígið strax – eflaust miklu erfiðara að lenda 2–0 undir.“
Að lokum sagði hún að liðið einbeiti sér nú að næsta leik:
„Nú er það bara endurheimt og undirbúningur, hittast aðeins saman og skerpa á smáatriðum en síðan bara byrja strax að gera sig reddí í leikinn á morgun, byggja ofan á það sem við erum að gera og þá kemur þetta.“
Framhaldið
Staðan í einvíginu er nú 1–1 og ljóst að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður hörð.
Næsti leikur fer fram á Akureyri þar sem SA fær heimavöllinn aftur og tækifæri til að taka forystuna á ný

Hart barist (Hafsteinn Þorsteinsson)
Leikur #2
þriðjudaginn 24. mars 2026 kl.19:45

Skautafélag Reykjavíkur
2
1

Skautafélag Akureyrar
1. Lota

#41 shawlee gaudreault

#80 julianna thomson

#10 arna björg friðjónsdóttir, Stoð: #23 fridrika ragna magnusdottir, #10 kristína ngoc linh davidsdottir

#6 arna gunnlaugsdottir
2. Lota

#10 guðrún ásta valentine

#16 ragnhildur kjartansdottir
3. Lota

#77 herborg geirsdottir, Stoð: #24 kolbrun bjornsdottir
Framlenging

#80 julianna thomson

#41 shawlee gaudreault
Vítakeppni

#77 herborg geirsdottir

#23 fridrika ragna magnusdottir

#24 kolbrun bjornsdottir

#28 teresa snorradottir

#19 amanda bjarnadottir

#23 fridrika ragna magnusdottir
