Kristján Heiðar Kristjánsson stjórnarmaður í Íshokkísambandinu og hokkí foreldri á Akureyri skrifar pistil á Akureyri.net þar sem hann bendir á þá staðreynd að Skautafélag Akureyrar, sérlega íshokkídeildin þar er að sprengja utan af sér aðstöðuna fyrir norðan og nú sé rétti tíminn til að fara að huga að frekari uppbygginu.
Í niðurlagi greinarinnar skrifar Kristján
„Á Akureyri hefur byggst upp öflugt og metnaðarfullt starf í íþróttum á ís. Nú er tækifæri til að halda áfram þeirri vegferð í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld og tryggja að aðstaðan þróist í takt við þann veruleika sem við sjáum í dag.“
Íshokki.is mælir með að allt skautafólk lesi þessa grein hlekkur á hana er hér.
