Karlalandslið Íslands heldur til Búlgaríu – HM framundan

by | 3 apr, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Karlalandslið Íslands í íshokkí tekur þátt í heimsmeistaramóti IIHF sem fram fer í Sofia í Búlgaríu dagana 6.–12. apríl. Mótið fer fram í Winter Sports Palace þar sem Ísland mætir sterkum andstæðingum í baráttunni um efsta sætið.

Markmið liðsins er skýrt – að vinna deildina og tryggja sér sæti í hærri deild að ári.

Íslenska liðið hefur undirbúið sig vel fyrir mótið og mætir til leiks með blöndu af reynslu og spennandi leikmönnum sem geta haft úrslitaáhrif á stuttum tíma.

Unnar fagnar marki í Nýja Sjálandi í fyrra

Hópur Íslands

Markmenn:

  • Helgi Ívarsson
  • Róbert Steingrímsson

Varnarmenn:

  • Arnar Helgi Kristjánsson
  • Atli Sveinsson
  • Gunnar Arason
  • Ormur Jónsson
  • Róbert Pálsson
  • Viktor Mojzyszek
  • Þorgils Eggertsson

Sóknarmenn:

  • Alex Máni Sveinsson
  • Andri Már Mikaelsson
  • Bjarmi Kristjánsson
  • Gunnlaugur Þorsteinsson
  • Hákon Marteinn Magnússon
  • Heiðar Gauti Jóhannsson
  • Hektor Hrólfsson
  • Jóhann Leifsson
  • Kári Arnarsson
  • Níels Þór Hafsteinsson
  • Styrmir Maack
  • Ólafur Baldvin Björgvinsson
  • Unnar Hafberg Rúnarsson

Heiðar Jóhannsson á mótinu í Nýja Sjálandi í fyrra

Starfslið

  • Martin Struzinski, aðalþjálfari
  • Rúnar Freyr Rúnarsson, aðstoðarþjálfari
  • Robin Danielson, markmanns- og myndbandsþjálfari
  • Marcin Mojzyszek, tækjastjóri
  • Kristján Sturluson, liðstjóri
  • Jóhann Þór Jónsson, heilbrigðisstarfsmaður

Leikir Íslands á mótinu

(Allir tímar eru gefnir upp á íslenskum tíma)

• Mánudagur 6. apríl: Ísland – Kínverska Taípei, kl. 13:30
• Þriðjudagur 7. apríl: Ísland – Nýja Sjáland, kl. 10:00
• Fimmtudagur 9. apríl: Ísland – Kirgisistan, kl. 13:30
• Laugardagur 11. apríl: Búlgaría – Ísland, kl. 13:30
• Sunnudagur 12. apríl: Ísrael – Ísland, kl. 10:00

Beinar útsendingar

Leikir mótsins verða í beinni útsendingu á icehockeyiceland.tv.

Þetta eru leikir sem enginn íshokkí áhugamaður vill missa af!

Share This