Öruggur sigur á Nýja Sjálandi – Ísland vann 6–2

by | 7 apr, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Karlalandslið Íslands náði öðrum sigri sínum á heimsmeistaramótinu í Sofia þegar liðið lagði Nýja Sjáland örugglega 6–2.

Ísland var sterkari aðilinn lengst af og byggði upp forskot jafnt og þétt eftir því sem leið á leikinn.

Nú tekur við frídagur hjá liðinu áður en Ísland mætir Kirgistan á fimmtudaginn klukkan 13:30 að íslenskum tíma.

Leikurinn:

Leikurinn byrjaði með marki frá Nýja Sjálandi en Ísland svaraði fljótt. Kári Arnarsson jafnaði leikinn í powerplay og Gunnlaugur Þorsteinsson kom Íslandi yfir áður en fyrsta leikhluta lauk.

Í öðrum leikhluta jók Ísland forskotið enn frekar. Gunnlaugur bætti við öðru marki sínu og Hákon Marteinn Magnússon skoraði einnig áður en Unnar Hafberg Rúnarsson kom Íslandi í 5–1 með marki í powerplay.

Í þriðja leikhluta fullkomnaði Gunnlaugur þrennuna sína áður en Nýja Sjáland náði að minnka muninn undir lokin. Ísland sigldi þó sigrinum örugglega heim, 6–2.

MMA?

Maður leiksins – Gunnlaugur Þorsteinsson

Gunnlaugur var valinn maður leiksins eftir frábæra frammistöðu þar sem hann skoraði þrennu.

Tölfræði:

Ísland:

  • Gunnlaugur Þorsteinsson – 3/0
  • Hákon Magnússon – 1/1
  • Jóhann Leifsson – 0/2
  • Gunnar Arason – 0/2
  • Níels Hafsteinsson – 0/2
  • Unnar Rúnarsson – 1/0
  • Kári Arnarsson – 1/0
  • Þorgils Eggertsson – 0/1
  • Ólafur Björgvinsson – 0/1

Helgi Ívarsson 24/25 (96%)

Róbert Steingrímsson 2/3 (66,7%)

Gunnlaugur Þorsteinsson maður leiksins

Share This