Karlalandslið Íslands hóf heimsmeistaramótið í Sofia í Búlgaríu með sigri þegar liðið lagði Kínverska Taípei 6–5 í fjörugum og kaflaskiptum leik.
Ísland náði snemma undirtökunum en þurfti að hafa fyrir sigrinum eftir að Taípei náði að koma sér aftur inn í leikinn.
Næsti leikur liðsins er í dag, þriðjudag, klukkan 10:00 að íslenskum tíma gegn Nýja Sjálandi.
Leikurinn:
Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og skoraði fjögur mörk í fyrstu lotu. Unnar Rúnarsson var þar í aðalhlutverki og skoraði tvö af fyrstu mörkum liðsins. Alex Sveinsson og Hákon Magnússon bættu svo við mörkum og staðan eftir fyrsta leikhluta var 4–1 Íslandi í vil.
Í öðrum leikhluta minnkaði Taípei muninn og spennan jókst. Fyrir lokaþriðjung var staðan 4–3.
Í þriðja leikhluta bætti Ísland við tveimur mörkum þegar Unnar kláraði þrennuna sína og Styrmir Maack skoraði einnig. Taípei náði þó að svara en íslenska liðið hélt út og tryggði sér 6–5 sigur.

Unnar að fagna 1 af 3 mörkum sýnum í leiknum
Tölfræði:
Ísland:
- Unnar Hafberg Rúnarsson – 3/0
- Kári Arnarsson – 0/3
- Jóhann Leifsson – 0/3
- Styrmir Maack – 1/1
- Hákon Marteinn Magnússon – 1/1
- Alex Sveinsson – 1/0
- Atli Sveinsson – 0/1
- Róbert Pálsson – 0/1
Helgi Ívarsson 26/31 (83,9%)
Unnar var valinn maður leiksins eftir að hafa skorað þrennu.
Flottur sigur, hvað var að virka vel hjá ykkur í dag?
„Fórum bara eftir kerfinu og vorum allir á sömu blaðsíðu og það vantaði ekki dugnað.“
Hvernig skorar maður 3 mörk í svona leik, er það ekkert mál?
„Spila með góðum leikmönnum og vera á réttum stað á réttum tíma, en jú það er ekkert gefið – maður þarf alveg að vinna fyrir því.“
Þið hleyptuð þeim tvisvar sinnum inn í leikinn, hvernig ætli þið að passa að það gerist ekki aftur?
„Halda áfram að spila kerfið sem er að virka mjög vel og bara vera jákvæðir.“

Unnar Rúnarsson maður leiksins
