Ísland vann Kirgistan örugglega – þriðji sigurinn í röð

by | 10 apr, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Karlalandslið Íslands hélt áfram góðu gengi á heimsmeistaramótinu í Sofia þegar liðið lagði Kirgistan 6–3.

Ísland var sterkari aðilinn lengst af og stjórnaði leiknum þrátt fyrir að andstæðingurinn næði að halda sér inni í honum á köflum.

Í dag er frídagur hjá liðinu áður en Ísland mætir Búlgaríu á morgun klukkan 13:30 að íslenskum tíma.

Leikurinn:

Ísland komst yfir í fyrsta leikhluta með marki frá Alex Sveinssyni eftir stoðsendingar frá Kára Arnarssyni og Styrmi Maack.

Markmaður Kirgistan lendir ílla í Styrmi

Í öðrum leikhluta jók Ísland forskotið með mörkum frá Kára Arnarssyni og Hákoni Magnússyni og staðan orðin 3–1.

Í þriðja leikhluta bætti Ísland enn við. Þorgils Eggertsson og Ormur Jónsson skoruðu áður en Styrmir Maack innsiglaði sigurinn með sjötta marki Íslands. Kirgistan náði að svara með tveimur mörkum en sigur Íslands var aldrei í hættu.

Maður leiksins – Helgi Ívarsson

Helgi var valinn maður leiksins eftir sterka frammistöðu í markinu þar sem hann varði 34 skot.

Viðtal við Helga má sjá á samfélagsmiðlum íshokkísambandsins.

Helgi Ívarsson maður leiksins

Tölfræði:

Ísland:

  • Kári Arnarsson – 1/3
  • Alex Sveinsson – 1/2
  • Styrmir Maack – 1/2
  • Þorgils Eggertsson – 1/1
  • Hákon Marteinn Magnússon – 1/0
  • Ormur Jónsson – 1/0
  • Viktor Mojzyszek – 0/1
  • Ólafur Björgvinsson – 0/1
  • Níels Hafsteinsson – 0/1
  • Jóhann Leifsson – 0/1

Helgi Ívarsson 34/37 (91,9%)

Staða í riðli:

  1. Ísland – 9 stig
  2. Ísrael – 8 stig
  3. Nýja Sjáland – 4 stig
  4. Kínverska Taipei – 3 stig
  5. Kirgistan – 3 stig
  6. Búlgaría – 0 stig

Nóg að gera hjá Helga

Share This