Ísland endaði í þriðja sæti á HM eftir tap gegn Ísrael

by | 13 apr, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Karlalandslið Íslands hafnaði í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í Sofia í Búlgaríu eftir 5–2 tap gegn Ísrael í lokaleik mótsins.

Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um gullverðlaunin þar sem sigurvegari leiksins tryggði sér efsta sætið og sæti í hærri deild. Ísrael hafði betur að þessu sinni og tryggði sér gullið.

Ísland endar því mótið með þrjá sigra og tvö töp, samtals níu stig, og hafnar í þriðja sæti.

Leikurinn:

Ísrael byrjaði betur og skoraði tvö mörk snemma í fyrsta leikhluta. Unnar Hafberg Rúnarsson minnkaði muninn fyrir Ísland í powerplay áður en hlé var gert og staðan 2–1.

Í öðrum leikhluta bætti Ísrael við einu marki og staðan orðin 3–1 fyrir lokaleikhlutann.

Í þriðja leikhluta jók Ísrael muninn enn frekar í 4–1 áður en Viktor Mojzyszek minnkaði muninn fyrir Ísland. Ísland reyndi allt til loka og tók markmanninn út af í leit að marki, en Ísrael innsiglaði sigurinn með marki í autt netið undir lokin.

Maður leiksins – Viktor Mojzyszek

Viktor var valinn maður leiksins hjá Íslandi eftir öfluga frammistöðu og mark í lokaleiknum.

Viktor maður leiksins

Tölfræði:

Ísland:

  • Unnar Hafberg Rúnarsson – 1/0
  • Viktor Mojzyszek – 1/0
  • Ólafur Björgvinsson – 0/1
  • Jóhann Leifsson – 0/1
  • Bjarmi Kristjánsson – 0/1
  • Heiðar Gauti Jóhannsson – 0/1

Helgi Ívarsson 23/27 (85,2%)

Lokastaða mótsins:

  1. Ísrael – 13 stig
  2. Nýja Sjáland – 10 stig
  3. Ísland – 9 stig
  4. Búlgaría – 6 stig
  5. Kirgistan – 4 stig
  6. Kínverska Taipei – 3 stig

Samantekt mótsins

Ísland vann þrjá fyrstu leiki sína á mótinu og var í baráttu um gullið allt fram á lokadag. Tap í síðustu tveimur leikjunum gegn Búlgaríu og Ísrael gerði það að verkum að liðið endaði í þriðja sæti að þessu sinni.

Þrátt fyrir það sýndi íslenska liðið á köflum sterkan leik og margt jákvætt má taka með sér úr mótinu.

Helgi stóð vaktina allt mótið

Share This