Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí lék sinn annan leik á heimsmeistaramótinu í Bled í Slóveníu í dag þegar liðið mætti Póllandi. Pólsku stúlkurnar reyndust sterkari og fögnuðu 4-1 sigri.
LEIKURINN:
Ísland fékk draumabyrjun þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Gunnborg Jóhannsdóttir kom Íslandi yfir eftir stoðsendingar frá Sunnu Björgvinsdóttur og Friðriku Rögnu Magnúsdóttur.
Pólland jafnaði leikinn í fyrsta leikhluta í powerplay og staðan var 1-1 eftir fyrstu tuttugu mínúturnar.

Elísa Sigfinnsdóttir
Annar leikhluti var markalaus þrátt fyrir talsverða pressu frá pólska liðinu og stóð íslenska vörnin þar af sér storminn, með Andreu Diljá Bachmann sterka í markinu.
Í þriðja leikhluta náði Pólland svo yfirhöndinni með tveimur mörkum. Þegar Ísland tók markvörðinn út undir lok leiks bættu Pólverjar svo við einu marki enn og innsigluðu 4-1 sigur.
MAÐUR LEIKSINS:
Magdalena Sulova var maður leiksins en einnig átti Andrea Bachmann, markvörð Íslands, frábæran leik og varði 45 skot.

Magdalena Sulova maður leiksins
TÖLFRÆÐI:
Ísland:
- Gunnborg Jóhannsdóttir – 1/0
- Sunna Björgvinsdóttir – 0/1
- Friðrika Magnúsdóttir – 0/1
Andrea Bachmann 45/48 (93,8%)
STAÐA RIÐILS:
- Pólland – 6 stig
- Ísland – 3 stig
- Slóvenía – 3 stig
- Kínverska Taipei – 2 stig
- Ástralía – 1 stig
NÆSTI LEIKUR:
Ísland mætir Ástralíu á morgun klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Andrea stóð vaktina vel í markinu
