Íslenska kvennalandsliðið lék í dag sinn þriðja leik á heimsmeistaramótinu í Bled í Slóveníu þegar liðið mætti Ástralíu. Ástralska liðið reyndist sterkara að þessu sinni og vann 4-1 sigur.
LEIKURINN:
Ástralía byrjaði leikinn af krafti og komst í 2-0 forystu í fyrsta leikhluta með tveimur mörkum.
Íslenska liðið svaraði snemma í öðrum leikhluta þegar Friðrika Magnúsdóttir minnkaði muninn í 2-1 í powerplay eftir stoðsendingar frá Sunnu Björgvinsdóttur og Katrínu Björnsdóttur.

Friðrika Magnúsdóttir eftir markið sitt
Vonir kviknuðu um áframhaldandi endurkomu, en Ástralía náði aftur tveggja marka forskoti síðar í öðrum leikhluta með marki í yfirtölu.
Í þriðja leikhluta bættu Ástralir svo við fjórða markinu og tryggðu sér sigurinn.
TÖLFRÆÐI:
Ísland:
- Friðrika Magnúsdóttir – 1/0
- Sunna Björgvinsdóttir – 0/1
- Katrín Björnsdóttir – 0/1
Andrea Diljá Bachmann 31/35 (88,6%)
NÆSTI LEIKUR:
Síðasti leikur Íslands á mótinu fer fram í dag gegn Kínverska Taipei klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Sólrún Arnardóttir
