Íslenska kvennalandsliðið lauk í dag keppni á heimsmeistaramótinu í Bled í Slóveníu þegar liðið mætti Kínverska Taipei í lokaleik sínum. Eftir spennandi og kaflaskiptan leik þurfti að knýja fram úrslit í framlengingu og vítakeppni þar sem Taipei hafði betur, 4-3.
LEIKURINN:
Kínverska Taipei komst yfir í fyrsta leikhluta og bætti svo við öðru marki snemma í öðrum leikhluta.

Teresa Snorradóttir var markahæsti varnarmaður mótsins
Íslenska liðið svaraði með marki í powerplay þegar Teresa Snorradóttir minnkaði muninn í 2-1 eftir stoðsendingar frá Friðriku Magnúsdóttur og Silvíu Björgvinsdóttur.
Taipei jók muninn aftur í 3-1, en Ísland gafst ekki upp. Herborg Geirsdóttir minnkaði muninn í 3-2 áður en leikhlutinn var úti eftir stoðsendingar frá Sögu Blöndal og Katrínu Björnsdóttur.
Í þriðja leikhluta jafnaði Ísland svo metin þegar Magdalena Sulova skoraði undir lok venjulegs leiktíma eftir stoðsendingar frá Sunnu Björgvinsdóttur og Elísu Sigfinnsdóttur.
Ekki tókst að skora í framlengingu og því var gripið til vítakeppni þar sem Taipei skoraði sigurmarkið.

Sunna Björgvinsdóttir stigahæst hjá Íslandi á mótinu
TÖLFRÆÐI:
Ísland:
- Sunna Björgvinsdóttir – 0/2
- Teresa Regína Snorradóttir – 1/0
- Herborg Geirsdóttir – 1/0
- Magdalena Sulova – 1/0
- Friðrika Magnúsdóttir – 0/1
- Saga Blöndal – 0/1
- Kolbrún Björnsdóttir – 0/1
- Elísa Sigfinnsdóttir – 0/1
Andrea Diljá Bachmann 41/44 (93,2%)
BESTI LEIKMAÐUR ÍSLANDS Á MÓTINU:
Katrín Rós Björnsdóttir var valin besti leikmaður Íslands á mótinu eftir að hafa átt frábært mót á báðum endum vallarins.

Katrín Björnsdóttir besti leikmaður Íslands á mótinu
LOKASTAÐA MÓTSINS:
- Pólland – 12 stig
- Slóvenía – 6 stig
- Kínverska Taipei – 4 stig
- Ástralía – 4 stig
- Ísland – 4 stig
SAMANTEKT:
Ísland endar því í 5. sæti mótsins eftir harða baráttu í sterkum riðli. Liðið sýndi karakter með sigrinum á heimakonum í Slóveníu og barðist allt til loka í lokaleiknum gegn Taipei.

Andrea var með yfir 90% markvörslu á mótinu
