Svissneski íshokkíþjálfarinn Patrick Fischer hefur verið rekinn úr starfi eftir að hafa viðurkennt að hafa notað falsað vottorð um COVID-19 bólusetningu til að komast inn í Kína fyrir Vetrarólympíuleikana í Beijing árið 2022.
Fischer sagðist hafa verið í erfiðri persónulegri stöðu á þessum tíma. Hann vildi ekki þiggja bólusetningu en taldi sig jafnframt ekki geta brugðist svissneska landsliðinu með því að missa af leikunum. Samkvæmt svissneskum fjölmiðlum keypti hann falsað skírteini á samfélagsmiðlum og var síðar sektaður um tæplega 39 þúsund svissneska franka (6,1 milljón ISK) fyrir skjalafals.
Í fyrstu lýsti Svissneska íshokkísambandið yfir stuðningi við Fischer eftir játningu hans, en eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun var ákveðið að segja honum upp störfum. Sambandið sagði málið hafa vakið mikilvægar spurningar um traust og gildi innan íþróttarinnar.
Fischer hafði stýrt svissneska landsliðinu frá árinu 2015 og náð góðum árangri, meðal annars unnið þrjú silfur á heimsmeistaramótum. Hann átti upphaflega að láta af störfum eftir heimsmeistaramótið í Sviss síðar á þessu ári, en brottreksturinn tekur gildi strax.
