SA byrjar tímabilið á sigri gegn SR

by | 7 sep, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Skautafélag Akureyrar byrjaði tímabilið í Toppdeild kvenna á góðum 2–0 sigri gegn Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahöllinni á Akureyri á laugardag.

Bæði mörk leiksins komu í fyrsta leikhluta en SA hafði mikla yfirburði í skotum, 43 á móti 12. Julianna Thomson átti þrátt fyrir tapið góðan leik í marki SR og varði 41 skot.

LEIKURINN: SA 2–0 SR (2–0, 0–0, 0–0)

SA þurfti aðeins 31 sekúndu til að opna markareikning tímabilsins. Silvía Björgvinsdóttir kom heimakonum í 1–0 eftir stoðsendingu frá Sylvíu Kristinsdóttur.

Silvía og Hilma fagna marki

SA hélt áfram að sækja og annað markið kom þegar 10:35 voru liðnar af fyrsta leikhluta. Hilma Bergsdóttir skoraði þá eftir stoðsendingu frá Sólrúnu Arnardóttur og Silvíu Björgvinsdóttur, staðan orðin 2–0.

Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir mikla skothríð SA. Heimakonur áttu 17 skot á mark í fyrsta leikhluta, 13 í öðrum og önnur 13 í þeim þriðja. Julianna Thomson lokaði markinu eftir mörkin tvö og varði alls 41 af 43 skotum SA.

Shawlee fékk líka hjálp frá varnarmönnunum sínum

SR fékk töluvert færri færi hinum megin og náði 12 skotum á mark SA. Shawlee Gaudreault varði þau öll og hélt hreinu í fyrsta leik tímabilsins.

Lokastaðan því 2–0 fyrir SA sem byrjar tímabilið með sigri á heimavelli.

TÖLFRÆÐI

SA:

  • Silvía Björgvinsdóttir – 1/1
  • Hilma Bergsdóttir – 1/0
  • Sylvía Kristinsdóttir – 0/1
  • Sólrún Arnardóttir – 0/1

Shawlee Gaudreault – 12/12 (100%)

SR:

Julianna Thomson – 41/43 (95,3%)

Skot á mark: SA 43–12 SR
Lokastaða: SA 2–0 SR (2–0, 0–0, 0–0)

Næsti leikur

Næsti leikur í Toppdeild kvenna verður næsta laugardag, 12.9.2026, þegar Fjölnis konur fara norður og spila við SA

Guðrún og Inga að berjast

Share This