Arnar átti þátt í sex mörkum

by | 27 sep, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

SA náði í sín fyrstu stig á keppnistímabilinu í kvöld þegar liðið vann U20 ára landsliðið 9:3 í Toppdeild karla í Skautahöllinni á Akureyri.

Akureyringar fengu að hafa fyrir hlutunum í fyrsta leikhluta og þá var staðan til að mynda 2:2. Að honum loknum var SA yfir 3:2 en í öðrum leikhluta sleit SA sig frá og breytti stöðunni í 6:2.

SA tapaði fyrsta leiknum á tímabilinu fyrir viku síðan fyrir Fjölni í Grafarvogi 4:1 og voru þetta því fyrstu stig SA. U20 ára liðið er án stiga en leikmenn liðsins geta dregið mikinn lærdóm af leikjunum í vetur.

Fyrirliði SA Jóhann Leifsson var drjúgur í sókninni og skoraði 4 mörk auk þess að gefa stoðsendingu. Arnar Kristjánsson átti þátt í sex mörkum því hann gaf 5 stoðsendingar og skoraði eitt sjálfur. Þá gaf Hafþór Sigrúnarson 3 stoðsendingar auk þess að skora eitt mark sjálfur.

Aðrir sem skoruðu fyrir SA voru: Gunnar Arason, Baltasar Hjálmarsson og Pétur Sigurðsson.

Mikael Eiríksson, Alex Máni Ingason og Bjartur Westin skoruðu fyrir U20 ára liðið í leiknum og Helgi Bjarnason, Gabríel Egilsson, Egill Þorsteinsson, Aron Freyr Gautason, Alex Máni og Bjartur áttu stoðsendingar.

 

 

Share This