SR vann öruggan sigur á Fjölni í Egilshöll

by | 30 sep, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Skautafélag Reykjavíkur vann 6–1 sigur á Fjölni í Toppdeild karla í Egilshöll á þriðjudagskvöld.

Jafnt var eftir fyrsta leikhluta en SR tók yfir í öðrum og þriðja leikhluta og skoraði fimm mörk án þess að Fjölnir næði að svara.

LEIKURINN: Fjölnir 1–6 SR (1–1, 0–2, 0–3)

Kári Arnarsson kom SR yfir þegar 7:41 voru liðnar af fyrsta leikhluta. Fjölnir svaraði undir lok leikhlutans þegar Jere Koikkalainen jafnaði eftir stoðsendingar frá Jóni Helgasyni. Staðan var því 1–1 eftir fyrsta leikhluta.

Kári fyrirliði SR fagnar fyrsta marki leiksins (Gunnar Jónatansson)

SR tók síðan frumkvæðið í öðrum leikhluta. Ævar Arngrímsson kom liðinu í 2–1 eftir stoðsendingu frá Níels Hafsteinssyni og Ævar skoraði aftur tæpum átta mínútum síðar, þá eftir stoðsendingu frá Gunnlaugi Þorsteinssyni. SR leiddi því 3–1 fyrir lokaþriðjunginn.

SR gerði síðan út um leikinn snemma í þriðja leikhluta. Niels Hafsteinsson skoraði í yfirtölu eftir stoðsendingar frá Alex Mána Sveinssyni og Kára Arnarssyni og staðan orðin 4–1.

Aðeins rúmri mínútu síðar skoraði Kári sitt annað mark og kom SR í 5–1 eftir stoðsendingar frá Agli Þormóðssyni og Alex Mána. Heiðar Örn Kristveigarson innsiglaði síðan 6–1 sigur SR með marki í yfirtölu þegar tæpar tíu mínútur voru eftir.

Alltaf hart barist í Egilshöll (Gunnar Jónatansson)

TÖLFRÆÐI

Fjölnir:

  • Jere Koikkalainen – 1/0
  • Jón Helgason – 0/1

Þórir Aspar – 49/55 (89,1%)

SR:

  • Kári Arnarsson – 2/1
  • Ævar Arngrímsson – 2/0
  • Niels Hafsteinsson – 1/1
  • Heiðar Örn Kristveigarson – 1/0
  • Alex Máni Sveinsson – 0/2
  • Gunnlaugur Þorsteinsson – 0/2
  • Egill Þormóðsson – 0/1
  • Eduard Kascak – 0/1

Jóhann Björgvin Ragnarsson – 30/31 (96,8%)

Jóhann Björgvin stóð sig vel í markinu (Gunnar Jónatansson)

Skot á mark: Fjölnir 31–55 SR
Lokastaða: Fjölnir 1–6 SR (1–1, 0–2, 0–3)

Næsti leikur:

Næsti leikur í Toppdeild karla er næstkomandi lagardag þegar SA Víkingar skella sér suður í Laugardalinn og mæta þar SR

Share This