Gullmark fyrirliðans réði úrslitum

by | 3 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Íslandsmeistararnir í Skautafélagi Reykjavíkur hafa fengið hálfgerða óskabyrjun á Íslandsmótinu en liðið vann í kvöld Skautafélag Akureyrar 3:2 í Laugardalnum eftir framlengdan leik og dramatík. 

SR vann stórsigur á Fjölni 6:1 í Grafarvogi í síðasta mánuði og bætti nú við sigri gegn erkifjendunum frá Akureyri þótt sigurinn gefi 2 stig en ekki 3 þar sem ekki tókst að fá fram úrslit í venjulegum leiktíma. Auk þess tóku meistararnir leikina tvo gegn U20 ára liðinu mjög föstum tökum í upphafi móts og skoruðu 12 mörk í þeim báðum. 

SR-ingar mættu öllu meira mótlæti í kvöld því þeir lentu bæði 0:1 og 1:2 undir í leiknum. Stefán Guðnason skoraði fyrsta markið í kvöld þegar hann komst í mjög gott færi nánast einn gegn markverði og skoraði með skoti í hægra hornið. 

SR-ingar urðu sókndjarfir eftir markið og voru líklegir til að jafna fljótt. Það gerðu þeir um einni og hálfri mínútu eftir mark Stefáns. Hákon Magnússon gaf þá mjög góða sendingu fyrir mark SA og Styrmir Maack kom á ferðinni og skoraði af stuttu færi. 

SA-ingar nýttu fyrsta power playið sitt í kvöld til að komast aftur yfir í fyrsta leikhluta. Fyrirliðinn Jóhann Leifsson fékk pökkinn vinstra megin og skoraði með skoti á nærstöngina og staðan var 2:1 fyrir SA eftir fyrsta leikhluta. 

Annar leikhluti var nýfarinn af stað þegar Ævar Arngrímsson hafði jafnað fyrir SR úr power play og leikurinn aftur orðinn galopinn. Á þeim tímapunkti bjóst maður ekki við öðru en að mörkin yrðu fleiri í venjulegum leiktíma en svo fór þó ekki. Um miðjan annan leikhluta áttu SR-ingar skot í bæði stöng og slá en þar voru á ferðinni Gunnlaugur Þorsteinsson og Styrmir. 

Brottvísun í framlengingunni

Í nærri tvo leikhluta tókst markvörðum liðanna Jóhanni Björgvini Ragnarssyni og Róberti Steingrímssyni að skella í lás og fyrir vikið þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit. Þótt ekki hafi verið skorað frá því í upphafi annars leikhluta var leikurinn samt sem áður fín skemmtun. Hann var opinn, spennandi og liðin fengu færi til skiptis. Eins og gengur fengu leikmenn tækifæri til að klára dæmið en Jóhanni og Róberti tókst að sjá við þeim. 

Í framlengingunni fengu bæði lið vitaskuld sín tækifæri enda er þá leikið 3 á móti 3 með tilheyrandi fjöri. Þegar framlengingin var meira en hálfnuð varð vendipunktur í leiknum þegar einum reyndasta manninum á ísnum, Hafþóri Sigrúnarsyni hjá SA, urðu á mistök og lét hann reka sig út af í 2 mínútur. Meistararnir fengu því tækifæri til að gera út um leikinn 4 á móti 3 og létu það tækifæri sér ekki úr greipum ganga. 

Reynsluboltinn Egill Þormóðsson fékk pökkinn og lagði hann sallarólegur fyrir fyrirliðann Kára Arnarsson sem hamraði í netið. Gullmark því staðreynd og SR-ingar eru enn ósigraðir á Íslandsmótinu. 

Akureyringar fara fremur hægt af stað í mótinu og höfðu áður tapað 4:1 gegn Fjölni. Frammistaðan í kvöld var þó væntanlega miklu betri en í Egilshöllinni á dögunum og skilaði þeim einu stigi. 

SR byrjar mjög vel á Íslandsmótinu og útlitið virðist gott þótt enginn verði Íslandsmeistari í október. SR-ingar gæla þó væntanlega við þá hugsun að þeir geti varið bikarinn og unnið Íslandsmótið í fjórða sinn á fimm árum.

Mörk SR: Styrmir Maack, Ævar Arngrímsson, Kári Arnarsson.

Stoðsendingar: Hákon Magnússon 2, Sölvi Atlason, Kári Arnarsson, Egill Þormóðsson.

Mörk SA: Stefán Guðnason, Jóhann Már Leifsson.

Stoðsendingar: Gunnar Arason 2, Pétur Sigurðsson.

Ljósmynd/Hafsteinn

Share This