Kári Arnarsson fyrirliði SR segir Íslandsmeistarana hafa komið vel undirbúna til leiks á Íslandsmótinu og það hafi skilað sér í góðri byrjun í mótinu. Í gær vann SR 3:2 sigur á SA eftir framlengdan leik í Laugardalnum.
„Við hefðum alltaf viljað fá 3 stig út úr þessum leik. Mér fannst við gefa þeim allt of mörg power play en við stóðum okkur svo sem ágætlega í að verjast þeim. Ég hefði viljað sjá okkur nýta færin okkar aðeins betur og brjóta ekki jafn mikið af okkur og við gerðum. Mér finnst eins og við séum með miklu sterkari leikmannahóp og mér fannst leikurinn því óþarflega jafn. En þannig er hokkíið, leikir geta verið jafnir og þá þarf að finna leið til að vinna. Ég er ánægður með okkur að finna leið til að vinna í lokin,“ sagði Kári við ishokki.is að leiknum loknum en þar kom einmitt fyrirliðinn sjálfur til skjalanna og skoraði gullmarkið með góðu skoti.
„Það er alltaf ljúft að sjá pökkinn í netinu og hvað þá í framlengingu. En sigurinn er mikilvægastur og því hefði verið ljúft að sjá hvaða samherja minn sem er skora í þessari stöðu.“
SR-ingar fengu að hafa fyrir hlutunum og lentu tvívegis undir í leiknum. Var Kári ánægður með hvernig SR brást við þeirri stöðu?
„Við erum vanir því að lenda undir í leikjum og höfum komið til baka jafnvel þótt það sé meira en eins marks munur. Við vitum að við erum lið sem verður betra þegar líður á leikina. Við hengjum því ekki haus yfir því að fá á okkur eitt eða tvö mörk. Við vildum spila okkar leik og ég gef þeim það að þeir voru erfiðari í þriðja leikhlutanum en við héldum. Við eyddum allt of mikilli orku í penalty kill. Ef við hefðum ekki verið í þeirri stöðu held ég að úrslitin hefðu orðið allt önnur.“
Kári bendir á að SR-ingar séu ekki bara ósigraðir í upphafi móts heldur á þessu ári.
„Við höfum unnið alla leiki á árinu. Þetta voru 6 eða 8 leikir eftir áramót á síðasta ári sem við unnum og nú eru sigurleikirnir orðnir fjórir á nýju tímabili,“ segir Kári og hann segir þjálfarann Miloslav Racansky hafa látið Íslandsmeistarana púla á undirbúningstímabilinu. Þeir hafi því verið vel undirbúnir fyrir Íslandsmótið.
„Menn æfðu vel og við reyndum að hreyfa okkur sem mest í sumar. Í byrjun tímabilsins lét Miloslav okkur skauta ansi mikið og menn eru því komnir í gott form sem skilaði sér í dag.“
Ljósmynd/Hafsteinn
