Magnaðar sviptingar í Grafarvoginum

by | 9 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Akureyringar réttu hlut sinn nokkuð í Topp-deild karla í kvöld eftir mikla dramatík í Grafarvoginum. Skautafélag Akureyrar hafði betur gegn Fjölni 5:4 í Egilshöllinni og kvittaði þar með að einhverju leyti fyrir tapið gegn Fjölni í upphafi tímabilsins.

Fyrir tæpri viku síðan tapaði SA eftir framlengdan leik fyrir SR í Laugardalnum eftir að hafa lent manni undir í framlengingunni. Nú snérist dæmið við fyrir Akureyringana því Fjölnismaðurinn Andri Helgason fékk brottvísun í framlengingunni í kvöld. SA nýtti sér það og fyrirliðinn Jóhann Már Leifsson skoraði sigurmarkið. SA fékk því tvö stig út úr leiknum og Fjölnir eitt.

Þar með hefur SA unnið tvo leiki, tapað einum og tapað öðrum eftir framlengingu. Fjölnir hefur unnið einn leik og tapað þessum eftir framlengingu. Meistararnir í SR hafa unnið þrjá í venjulegum leiktíma og einn eftir framlengingu.

Lengi vel benti fátt til þess að Fjölnir fengi stig út úr leiknum í kvöld eins og raunin varð. SA komst í 1:0 og síðan í 4:1 eftir 49 mínútur. Fjölnismenn gáfu þá í og náðu ótrúlegum kafla þar sem liðið skoraði þrívegis á liðlega tveimur mínútum og jafnaði 4:4. Magnaðar sviptingar en SA tókst að verða ofan á í framlengingunni eins og áður segir.

Eftir fyrsta leikhluta var staðan 0:1 og 1:2 eftir annan leikhluta.

Mörk SA: Jóhann Már Leifsson 2, Hafþór Sigrúnarson 2, Mikael Eiríksson.

Stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 2, Gunnar Arason 2, Bjarki Jóhannesson, Arnar Kristjánsson, Aron Gautason, Alex Ingason, Ormur Jónsson.

Mörk Fjölnis: Falur Guðnason, Hilmar Sverrisson, Viggó Hlynsson, Krisjanis Abolins-Abols.

Stoðsendingar: Kristján Jóhannesson 2, Krisjanis Abolins-Abols, Andri Helgason.

Ljósmynd/Hafsteinn

Share This