SA Víkingar bleikir gegn SR í bleikum október – frítt streymi!

by | 16 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

SA Víkingar ætla að leggja Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis (KAON) lið í heimaleik sínum í Topp deild karla á morgun laugardag.

Í tilefni af Bleikum október, átakinu gegn krabbameinum hjá konum. Ætlar liðið, sem venjulega spilar í rauðu, klæðast sérhannaðri bleikri keppnistreyju með bleiku slaufuna yfir hjartanu. Leikurinn er „Hundraðkrónuleikurinn“, að sænskri fyrirmynd („Enkronasmatchen“). Aðgangur kostar aðeins 100 kr. og gestum er frjálst að leggja meira af mörkum. Allur ágóði leiksins rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON)
Söfnunarreikningur er 0162-05-261155 kt. 630295-2709

Streymi frá leiknum verður opið og frítt inn á streymisrás ÍHÍ  Gestir þurfa að skrá sig inn á síðuna (það er frítt) og svo er leikurinn opin fyrir innan.

Á myndinni má sjá fyrirliða SA þá Jóhann Leifsson C (í miðju) Hafþór Sigrúnarson A (til vinstri) og Heiðar Jóhannsson A (til hægri) máta treyjurnar.

 

Share This