Langri sigurgöngu meistaranna lokið

by | 17 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Akureyringar urðu í kvöld fyrstir til að vinna Íslandsmeistarana í Skautafélagi Reykjavíkur í Topp-deild karla á keppnistímabilinu þegar liðin mættust á Akureyri. Nýir leikmenn liðsins settu svip sinn á leikinn.

Raunar hafði SR ekki tapað leik á þessu ári og urðu sigurleikirnir 15 í röð hjá Íslandsmeisturunum. SA Víkingar unnu hins vegar stórsigur 6:0 í kvöld og deildin er opin og skemmtileg í upphafi tímabilsins.

Akureyringar fengu óskabyrjun í leiknum og Birkir Rafn Einisson kom þeim yfir eftir rúma mínútu og Ormur Jónsson bætti við marki eftir rúmar 10 mínútur.

Þannig var staðan í nokkuð langan tíma eða þar til um miðjan annan leikhluta þegar Hafþór Sigrúnarson kom SA í 3:0.

Heimamenn voru því komnir í afar góða stöðu og segja má að Daniil Fursa hafi gulltryggt sigurinn með fjórða markinu eftir tæpar 5 mínútur í þriðja leikhluta. SA lét ekki þar við sitja og Unnar Rúnarsson skoraði aðeins 20 sekúndum síðar og bætti við öðru marki sínu þegar sex mínútur voru til leiksloka.

Nýju mennirnir stimpluðu sig inn

Akureyringar tilkynntu í vikunni um liðsstyrk þegar Daniil Fursa og Birkir Rafn Einisson gengu í raðir félagsins. Birkir Rafn kemur frá Danmörku og er uppalinn hjá SA en lék með Fjölni í fyrra. Birkir var því einungis eina mínútu að koma pökknum í netið í búningi SA Víkinga.

Talandi um búningana þá lék SA í bleiku í kvöld til að minna á baráttuna gegn krabbameini hjá konum en Krabbameinsfélagið stendur fyrir átaki í október eins og gert hefur verið í mörg ár. Ágóði af miðasölunni í kvöld rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Þá gátu áhorfendur einnig látið frjáls framlög renna til félagsins en fjöldi áhorfenda fylgdist með leiknum.  Þar sem allt gekk upp hjá SA á ísnum í kvöld þá er spurning hvort liðið muni spila fleiri leiki í bleiku treyjunni?

Daniil Fursa skoraði og gaf tvær stoðsendingar í fyrsta leik sínum með SA Víkingi og Eistinn stimplaði sig hressilega inn.

Mörk: Unnar Rúnarsson 2, Birkir Rafn Einisson, Ormur Jónsson, Hafþór Sigrúnarson, Daniil Fursa.

Stoðsendingar: Heiðar Jóhannsson 3, Jóhann Már Leifsson 2, Daniil Fursa 2, Birkir Rafn Einisson, Unnar Rúnarsson.

Ljósmyndir/Ólafur Örn Þorgrímsson.

Myndatexti: Eistinn Daniil Fursta skorar fyrsta mark sitt fyrir SA í kvöld.

Myndatexti: Heiðar Jóhannsson (6) átti þátt í þremur mörkum í kvöld.

Share This