Byrjunin í Topp-deild karla á keppnistímabilinu lofar góðu fyrir íshokkíunnendur sem vilja sjá jafna og spennandi deild. Með sigrinum á Akureyri í gærkvöldi opnuðu SA Víkingar deildina til muna.
Íslandsmeistararnir í SR og Akureyringar eru nú með þrjá sigra hvort lið í venjulegum leiktíma og bæði liðin hafa auk þess unnið einn eftir framlengingu.
SA hefur leikið 6 leiki og hefur tapað einum og öðrum eftir framlengingu. SA er í efsta sæti með 12 stig og skaust í efsta sætið með 6:0 sigrinum í gær.
SR er með 11 stig en meistararnir í SR eiga leik til góða og geta því endurheimt toppsætið.
Fjölnir er með 4 stig en hefur aðeins leikið 3 leiki. Fjölnir hefur unnið einn, tapað einum og tapað öðrum eftir framlengingu.
U20 ára landsliðið hefur leikið fjóra leiki og tapað þeim öllum. Ekki er svo sem við öðru að búast enda ungir og óreyndir menn en leikirnir eru góð reynsla fyrir þá og fín samhæfing fyrir landsliðsverkefnin.
Fjölnir vann SA í upphafi mótsins og því er spurning hvort í vetur gæti orðið þriggja liða barátta. Jóhann Már Leifsson fyrirliði SA hafði orð á því í viðtali við íshokkí.is á dögunum að deildin yrði væntanlega býsna jöfn.
Ljósmynd/Ólafur Örn Þorgrímsson.
