Seint verður sagt að Íslandsmótið í íshokkí sé ekki góð skemmtun. Íslandsmeistararnir í Skautafélagi Reykjavíkur höfðu betur eftir lygilegan framlengdan leik gegn Skautafélagi Akureyrar í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld í Topp deild karla.
SR lenti 0:4 og 1:5 undir í leiknum í kvöld en tókst engu að síður að næla í 2 stig eftir 6:5 sigur með gullmarki fyrirliðans Kára Arnarssonar. Er þetta í annað sinn í haust sem Kári tryggir SR sigur með gullmarki gegn SA.
Að loknum fyrsta leikhluta virtist sem Akureyringar myndu taka stigin þrjú en þá var staðan orðin 3:0 fyrir SA með mörkum Gunnars Arasonar, Agnars Agnarssonar og Uni Blöndal.
Ormur Jónsson bætti fjórða markinu við áður en Heiðar Örn Kristveigarsson kom SR á blað eftir hálftíma leik. Jóhann Már Leifsson fyrirliði SA skoraði fimmta mark SA en Alex Máni Sveinsson minnkaði muninn í 2:5 fyrir SR í öðrum leikhluta.

Kári Arnarsson skoraði snemma í þriðja leikhluta fyrir SR og Gunnlaugur Þorsteinsson minnkaði munininn í eitt mark en þá var aðeins half mínúta eftir af leiknum eftir að SR-ingar höfðu tekið markvörðinn út af.
Það virkaði aftur 12 sekúndum síðar þegar Eduard Kascak jafnaði 5:5. Ótrúlegar sviptingar og því þurfti að framlengja til að knýja fram úrslit.
Eins og áður segir þá skoraði Kári gullmark fyrir SR en markið kom þegar tæpar 3 mínútur voru liðnar af framlengingunni.
Myndatexti: SR-ingar fagna í Laugardalnum í kvöld.
Ljósmynd/Hafsteinn
