SA styrkti stöðu sína

by | 25 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna, Uncategorized

Skautafélag Akureyrar sýndi styrk sinn í kvöld þegar liðið vann Skautafélag Reykjavíkur 4:0 í Topp-deild kvenna í Skautahöllinni í Laugardal.

SA hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu og hefur aðeins fengið á sig 2 mörk sem er býsna magnað.

Þessi sömu lið mættust einnig í Laugardalnum fyrr í mánuðinum og þá vann SR 1:0 eftir framlengdan leik. SA vann hins vegar 2:0 þegar liðin mættust í fyrsta leik tímabilsins í september.

SA var 1:0 yfir eftir fyrsta leikhluta með marki Silvíu Björgvinsdóttur. Eftir meira en hálftíma leik kom annað markið frá Hilmu Bergsdóttur og Akureyringar gengu á lagið og náðu þriggja marka forskoti fyrir síðasta leikhlutann með marki Eyrúnar Garðarsdóttur.

Sólrún Arnardóttir innsiglaði 4:0 sigur SA með fjórða markinu á 45. mínútu.

Mörk SA: Silvía Björgvinsdóttir, Hilma Bergsdóttir, Eyrún Garðarsdóttir, Sólrún Arnardóttir.

Stoðsendingar: Eyrún Garðarsdóttir, Magdalena Sulova, Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir, Herberg Geirsdóttir.

Myndatexti: Hin kanadíska Shawlee Gaudreault hélt marki SA hreinu í kvöld.

Leikur #11

laugardaginn 24. október 2026 kl.19:45


Skautafélag Reykjavíkur

0

gegn

4


Skautafélag Akureyrar

1. Lota

Tími
Lið
Atvik
00:00
Markmaður á ís

#80 julianna thomson

00:00
Markmaður á ís

#41 shawlee gaudreault

08:03
🔔 MARK (0 - 1, EQ)

#91 silvia bjorgvinsdottir, Stoð: #17 eyrun gardarsdottir

2. Lota

Tími
Lið
Atvik
33:21
🔔 MARK (0 - 2, EQ)

#88 hilma bergsdóttir, Stoð: #68 magdalena sulova

36:46
🔔 MARK (0 - 3, EQ)

#17 eyrun gardarsdottir, Stoð: #25 aþena elínrós guðlaugsdóttir, Leikmaður finnst ekki

3. Lota

Tími
Lið
Atvik
44:36
🔔 MARK (0 - 4, EQ)

#26 solrun assa arnardottir, Stoð: #77 herborg geirsdottir

46:14
🔴 Brot (2 mín, Óíþróttamannsleg hegðun)

#91 silvia bjorgvinsdottir

60:00
Markmaður af ís

#80 julianna thomson

60:00
Markmaður af ís

#41 shawlee gaudreault

 

Share This