Fjölnismenn minntu hressilega á sig í Topp-deild karla í kvöld þegar þeir snéru erfiðri stöðu í sigur gegn Íslandsmeisturunum í Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahölinni í Laugardal. Fjölnir sigraði 5:4 eftir framlengdan leik en SR komst í 4:1 í leiknum.
Að lokinni fyrstu ofurhelginni í deildinni á þessu tímabili fær SA 4 stig út úr helginni, SR 3 stig og Fjölnir 2 stig en tveir af leikjunum þremur voru framlengdir. Er það enn ein vísbendingin um að hversu jöfn og skemmtileg deildin gæti orðið í vetur ef fram heldur sem horfir.
Að loknum fyrsta leikhluta benti fátt til annars en að SR næði í 3 stig í kvöld en þar var staðan orðin 4:1. SR skoraði því ekki mark frá því á 17. mínútu sem er athyglisvert en hafði sem sagt skorað 4 á um fjögurra mínútna kafla á fyrstu 17 mínútum leiksins. Fjölnir skoraði þó fyrsta markið í kvöld og það gerði Hilmar Sverrisson. Gunnlaugur Þorsteinsson, Heiðar Örn Kristveigarson, Kári Arnarsson og Níels Hafsteinsson svöruðu fyrir SR.

Í öðrum leikhluta tókst Fjölnismönnum að vinna sig aftur inn í leikinn með mörkum frá Sturlu Snorrasyni og Hilmari. Staðan var 4:3 frá því um miðjan annan leikhluta og þar til á næstsíðustu mínútu leiksins. Þá jafnaði Finninn Jere Koikkalainen eftir power play og því þurfti að framlengja til að knýja fram úrslit og spila um aukastigið.
Koikkanainen sýndi þá hversu útsjónarsamur hann er og skoraði gullmarkið. Hann skoraði því bæði jöfnunar-og sigurmarkið í kvöld. Finninn virðist eiga nóg eftir á tanknum þegar langt er liðið á leikina því í gærkvöldi skoraði hann einnig tvö mörk á lokakaflanum gegn SA þótt það réði reyndar ekki úrslitum í þeim leik sem SA vann.
Mörk SR: Gunnlaugur Þorsteinsson, Heiðar Örn Kristveigarson, Kári Arnarsson og Níels Hafsteinsson
Stoðsendingar: Hákon Magnússon, Ævar Arngrímsson, Pétur Maack, Haukur Steinsen, Kári Arnarsson, Alex Máni Sveinsson.
Mörk Fjölnis: Hilmar Sverrisson 2, Jere Koikkalainen 2, Sturla Snorrason.
Stoðsendingar: Hilmar Sverrisson, Krisjanis Abolins, Viktor Svavarsson, Hektor Hrólfsson, Andri Helgason.
Myndatexti: Fjölnismenn fögnuðu sigri í kvöld og tveimur stigum.
Myndatexti: Níels Hafsteinsson SR og Gabríel Egilsson Fjölni takast á í leiknum í kvöld.
Ljósmyndir: Hafsteinn Snær
Leikur #1
sunnudaginn 25. október 2026 kl.19:45

Skautafélag Reykjavíkur
4
5

Fjölnir
1. Lota

#31 jóhann björgvin ragnarsson

#50 tuomas heikkonen

#25 hilmar sverrisson, Án stoðsendinga

#9 gunnlaugur þorsteinsson, Stoð: #23 hakon magnusson

#10 heiðar örn kristveigarson, Stoð: #21 pétur maack, #8 ævar arngrímsson

#19 kári arnarsson, Stoð: #95 haukur steinsen

-

#23 hakon magnusson

#14 bergthor agustsson

#14 bergthor agustsson

#15 níels hafsteinsson, Stoð: #17 alex máni sveinsson, #19 kári arnarsson

#6 andri helgason

#6 andri helgason
2. Lota

#14 bergthor agustsson

#19 sturla snorrason, Stoð: #25 hilmar sverrisson, #86 krisjanis abolins abols

#25 hilmar sverrisson, Stoð: #15 viktor svavarsson

#14 eduard kascak

#14 eduard kascak

#6 andri helgason
3. Lota

#21 pétur maack

#14 bergthor agustsson

#86 krisjanis abolins abols

#15 níels hafsteinsson

#23 jere koikkalainen, Stoð: #84 hektor hrólfsson, #6 andri helgason
Framlenging

#23 jere koikkalainen, Án stoðsendinga

#31 jóhann björgvin ragnarsson

#50 tuomas heikkonen
