Enn einn spennutryllirinn á þessu íshokkíhausti fór fram í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld þegar Fjölnir náði í sinn fyrsta sigur í Topp-deildinni kvenna á keppnistímabilinu.
Fjölnir hafði betur gegn SR 3:2 eftir framlengdan leik og vítakeppni þar sem hinn reynda Flosrún Jóhannesdóttir skoraði sigurmarkið í vítakeppninni.
Fjölnir tefldi fram nýjum markverði í leiknum en hin bandaríska Cassandra Alice Goyette fékk leikheimild á dögunum og óhætt er að segja að hún hafi haft nóg að gera í fraumraun sinni fyrir Fjölni.
Berglind Leifsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir SR og var staðan 1:0 eftir fyrsta leikhluta. Fjörið jókst í öðrum leikhluta en þá komst SR aftur yfir 2:1. Flosrún jafnaði fyrir Fjölni 1:1 en Teresa Snorradóttir kom SR aftur yfir áður en Sigrún Árnadóttir jafnaði 2:2 fyrir Fjölni.
Ekkert var skorað í þriðja leikhlutanum og fengu liðin því sitt hvort stigið. Ekki var heldur skorað í framlengingunni og eins og áður segir náði Fjölnir aukastiginu í vítakeppninni.
Spennutryllirinn hélt áfram í vítakeppninni því langan tíma tók að knýja fram úrslit. Í fyrstu umferð skoraði Bríet María Friðjónsdóttir fyrir SR og Sigrún Árnadóttir kvittaði fyrir Fjölni. En þá tóku við nítján umferðir án þess að markverðirnir Goyette eða Julianna Thomson hleyptu inn marki. Eða þar til Flosrún skoraði sigurmarkið og kórónaði góðan leik en hún skoraði og gaf stoðsendingu í venjulegum leiktíma.
Mörk SR: Gunnborg Petra Jóhannsdóttir, Teresa Snorradóttir.
Stoðsendingar: Ragnhildur Kjartansdóttir, Berglind Leifsdóttir, Gunnborg Petra Jóhannsdóttir.
Mörk Fjölnis: Flosrún Jóhannesdóttir, Sigrún Árnadóttir.
Stoðsendingar: Laura-Ann Murphy, Elísa Dís Sigfinnsdóttir, Flosrún Jóhannesdóttir.
Myndatexti: Flosrún Jóhannesdóttir átti stórleik í kvöld.
Ljósmynd/Gunnar Jónatansson.
