Myndatexti: Miloslav Racanský kemur skilaboðum áleiðis í leik gegn Fjölni.
Ljósmynd/Egill Egilsson
Tékkinn Miloslav Racanský hefur haldið um stjórnartaumana hjá karlaliði Skautafélags Reykjavíkur síðustu fjögur árin og hefur sett saman mjög sterkt lið sem varð Íslandsmeistari í vor á sannfærandi hátt. Hvernig finnst honum Topp-deild karla fara af stað á þessu keppnistímabili?
„Það má segja að deildin hafi byrjað vel fyrir öll liðin þrjú. Fjölnir er að ná sér á strik á ný eftir tvö erfið tímabil sem er gaman að sjá. Það er mjög jákvætt að hafa harða samkeppni milli þriggja liða. Á þesum tímapunkti munar litlu í stigatöflunni og það er skemmtilegt. Eftir að ég kom til Íslands þá hafa baráttan stundum verið á milli tveggja liða en nú eru þau öll samkeppnishæf,“ segir Miloslav í samtali við íshokkí.is og ekki verður annað sagt en að leikirnir í haust hafa verið afar fjörugir. Mikið skorað og nánast í öðrum hverjum leik þarf að grípa til framlengingar.
„Já vissulega og það er skemmtilegt fyrir stuðningsmennina. Síðustu árin veit ég ekki hversu marga leiki ég hef séð þar sem okkur í SR tekst að vinna upp forskot en þeir eru margir. Ekki síst síðustu tvö árin. Fyrir áhorfendur er frábært að horfa á leiki þar sem liði tekst að jafna á lokamínútunni eins og stundum gerist. Fyrir mig sem þjálfara er hins vegar ekki nógu gott ef það eru hvað eftir annað skoruð 12-14 mörk í leikjunum hjá mínu liði. Stundum festi ég ekki svefn og reyni að finna lausnir á þessu vegna þess að ég tel að vandinn sé ekki kerfisbundinn hjá okkur. Leikskipulagið á að vera nógu gott til að verjast að mínu mati en einstaklingsmistök hafa reynst dýr. Við höfum hins vegar farið yfir það á æfingum og reynum að gera betur í næstu leikjum,“ segir Miloslav og þjálfarar allra þriggja liðanna sjá væntanlega sóknarfæri í því að verjast betur þegar líður á veturinn.
„Akkúrat. Þegar við fáum á okkur mörg mörk þá skelli ég ekki skuldinni á markverðina og varnarmennina eingöngu. Þetta snýst um allt liðið. Fyrir þremur vikum síðan fengum við á okkur sex mörk á Akureyri [6:0 tap]. Slíkt getur gerst og þegar það gerist þá fer næsta vika í að skoða það. Næst þegar við mættum SA fannst mér liðið verjast mun betur og maður sá vinnuna á æfingum skila sér [ 6:5 sigur eftir framlengingu]. Tveimur dögum síðar mættum við Fjölni og höfðum öll tök á leiknum í fyrsta leikhluta. En Fjölnir komst inn í leikinn og náði að jafna undir lok venjuegs leiktíma [4:5 tap eftir framlengingu].“
Miloslav er bjartsýnn á að deildina verði áfram skemmtileg í vetur og fari svo þá eigi það að gagnast A-landsliðinu.
„Ég vonast til þess að tímabilið verði gott og þá verða landsliðsmennirnir vel undirbúnir fyrir HM í vor. Ef landsliðinu gengur vel þá getur íþróttin stækkað frekar og deildin verður betri. Vonandi kemst landsliðið upp í efri hluta deildarinnar í þetta skiptið og ég hef trú á að það sé mögulegt. En til þess þurfa leikmennirnir að vera heilir og stundum sér maður atvik í deildinni sem eru ekki nógu sniðug með þetta í huga. Aðalatriðið er að menn geti farið heilir heim af ísnum og það hefur verið nokkuð um heilahristing og fleira síðustu árin.
Lygileg sigurganga
Undir stjórn Miloslav náði SR lygilegri sigurgöngu sem spannaði megnið af þessu ári þegar liðið vann 15 leiki í röð í Topp-deild karla. Þar á meðal fór liðið taplaust í gegnum úrslitarimmuna síðasta vor. Getur Miloslav útskýrt hvernig liðið getur haldið dampi eins og SR gerði í svo langan tíma?
„Leikmennirnir afrekuðu þetta. Þeir þurfa að framkvæma á ísnum. Á síðasta tímabili og í upphafi þessa tímabils þá hafa menn sýnt metnað til dæmis með því að mæta á hverja einustu æfingu. Það er ekki hægt að ná árangri sem þessum ef þú ert með færri en 20 menn á æfingum. Þeir höfðu gaman að því sem þeir voru að fást við og hafa trú á leikskipulaginu. Við spilum skemmtilegt hokkí þótt það sé um leið erfitt því menn þurfa að skauta af fullum krafti. Leikmennirnir fara eftir öllu sem ég segi og þeir vilja gera sitt besta. Þegar á ísinn er komið þá er þetta undir þeim komið. Leikmenn vinna leiki og þjálfararnir tapa leikjum,“ segir Miloslav og glottir út í annað.

Myndatexti: Miloslav og Daniel Kolar aðstoðarþjálfari á góðri stundu.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær
Þá vaknar sú spurning hvort hann finni fyrir pressu eftir þessa velgengni. Skautafélag Reykjavíkur er jú Íslandsmeistari. Er gerð krafa í Laugardalnum um að liðið endurtaki leikinn?
„Ég set pressu á sjálfan mig sem þjálfari SR en finn ekki fyrir neinni utanaðkomandi pressu. Mig grunar að sama megi segja um leikmenn SR. En þegar þú verður meistari þá fylgja því að sjálfsögðu væntingar og auðvitað vilja allir vinna titilinn. Maður getur aldrei slegið neinu föstu í íþróttum. Við reynum að bæta okkur á hverju ári til að verða betra lið en það getur verið mismunandi á milli tímabila hvaða leikmenn eru í stuði. Margt getur verið frábrugðið frá einu tímabili til annars í hópíþróttum. Leikmenn eru líka í mismunandi aðstöðu. Þegar menn eru í krefjandi vinnu í 8 tíma á dag þá er auðvitað erfitt að fara svo á æfingu þar sem ég er að öskra á þá og skipa þeim að gera eitt og annað,“ segir Miloslav og hann á ekki von á öðru en að leikmannahópur SR verði óbreyttur út tímabilið.
„Helgi Ívarsson markvörður bættist nýlega við en þetta er hópurinn sem við verðum með í vetur. Ég tel að það væri ekki gáfulegt að bæta við erlendum leikmanni þegar við erum með vel skipaðan leikmannahóp. Það vantar iðulega 4-5 leikmenn í hverjum leik en liðinu gengur samt vel. Þar af leiðandi er enginn þörf á að bæta við mannskap.“
Kann vel við sig á Íslandi
Miloslav er 33 ára gamall og fluttist hingað frá Tékklandi árið 2014. Hann er uppalinn í útjaðri höfuðborgarinnar fallegu, Prag, og ólst upp við hina ríku íshokkíhefð í Tékklandi. Hann fæddist tveimur mánuðum eftir að Tékkland varð sjálfstætt ríki þegar Tékkóslóvakía liðaðist í sundur og úr varð Tékkland og Slóvakía. Miloslav kom hingað á sínum tíma til að spila með SR og er nú bæði íslenskur og tékkneskur ríkisborgari.
„Til stóð að vera hér í eitt ár þegar ég kom til Íslands. Um vorið var riðill Íslands á HM haldin á Íslandi og þá spurði ég fólk frá Íshokkísambandinu hvort mögulegt væri fyrir mig að fá ríkisborgararétt. Þau sögðu mér að það væri möguleiki og ég ákvað því að bíða og sjá hvað myndi gerast. Ég kynntist í framhaldinu eiginkonu minni, við keyptum íbúð og við eigum börn í dag. Ég starfa í Skautahöllinni í Laugardal fyrir utan þjálfunina og er ekkert á förum frá Íslandi. Ég kann vel við mig,“ segir Miloslav og hér getur hann miðlað af reynslunni frá heimalandinu.

Myndatexti: Miloslav segist stundum eiga erfitt með að festa svefn þegar illa gengur.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær
„Ég myndi segja að íshokkí sé íþrótt númer 1 í Tékklandi um þessar mundir og sjálfur var ég heppinn að alast upp í mikilli íshokkífjölskyldu. Frændi minn var í tékkneska landsliðinu og varð heimsmeistari í Noregi árið 1999 þegar Tékkland vann Finnland í úrslitum. Það var því mikil saga í fjölskyldunni og ég er stoltur af uppruna mínum,“ segir Miloslav og spurður um muninn á tékkneskum leikmönnum og íslenskum þá nefnir hann agann sem dæmi. Mikill munur verður ávallt á getu vel launaðra atvinnumanna í Tékklandi og áhugamanna á Íslandi en aga eiga menn að geta tileinkað sér.
„Það er ekki líklegt til vinsælda að þjálfarar tali um hvernig vinnubrögðum er háttað varðandi dómgæslu, aganefndir og refsingar. En á almennum nótum, og án þess að vísa í ákveðin atvik, þá get ég lýst þeirri skoðun minni að refsingar gætu verið harðari í íslensku deildinni. Ef leikmaður fer í höfuðið á andstæðingi [checking to the head] þá er skynsamlegt að sá leikmaður fái þriggja leikja bann. Þá lærir hann væntanlega af mistökunum. Við skulum hafa í huga að hér á landi eru góðir leikmenn sem þurftu að hætta út af höfuðáverkum. Ég fékk leikbann í Tékklandi þegar ég gerði eitthvað heimskulegt á ísnum og ég lærði mína lexíu vegna þess að maður vill spila leikina. Ég get tekið dæmi frá því í leik með unglingaliði í Tékklandi þegar ég var 17 ára. Ég fékk 2 mínútna brottvísun og ég fór að rífa kjaft við dómarann. Lét eitthvað verulega slæmt út úr mér og var rekinn í bað. Þetta var mjög góður dómari sem dæmdi í efstu deild og ég fékk 5 leikja bann. Ég lærði af því,“ segir Miloslav Racanský þjálfari SR.
Á næstunni birtast einnig viðtöl við þjálfara karlaliða SA og Fjölnis um byrjunina á keppnistímabilinu. Einnig þjálfara liðanna í Topp-deild kvenna þegar fleiri leikir hafa farið fram í deildinni.
