Silvía atkvæðamest í upphafi tímabilsins

by | 11 nóv, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Björgvinsdæturnar á Akureyri, Silvía og Sunna,  eru stigahæstu leikmenn sem stendur í Topp-deild kvenna.

Báðar hafa þeir leikið 4 leiki og er Silvía með 13 stig (mörk og stoðsendingar) og Sunna kemur næst með 10 stig. Silvía Björgvinsdóttir er efst á lista bæði yfir stoðsendingar og skoruð mörk.

Hafa þær komið að töluvert fleiri mörkum en næstu leikmenn sem eru með 5 stig. Eru það liðsfélagar þeirra Sólrún Assa Arnardóttir, Magdalena Sulova og Guðrún Ásta Valentine.

Keppnistímabilið er ekki langt komið og hafa leikmenn spilað mis marga leiki eins og gengur.

Ef markaskor er skoðað þá er Silvía markahæst með 7 mörk og Sunna kemur næst með 5 mörk. Hér má nefna að Kolbrún Garðarsdóttir úr SA er með 3 mörk eftir aðeins 2 leiki og Flosrún Jóhannesdóttir úr Fjölni er með 2 mörk eftir aðeins 2 leiki.

Marey Viðja Sigurðardóttir úr SA er hlutfallslega með bestu markvörsluna eða 100% en á bak við það eru einungis 20 mínútur á ísnum eða einn leikhluti.

Shawlee Gaudreault í SA er með 97% markvörslu eftir 5 leiki og Julianna Thomson í SR er með 95% eftir 4 leiki. Cassandra Goyotte hefur leikið 2 leiki eftir að hún kom til Fjölnis og er með 87% vörslu. Karítas Halldórsdóttir er með tæplega 77% markvörslu hjá Fjölni.

Myndatexti: Silvía Björgvinsdóttir hefur byrjað tímabilið með látum.

Ljósmynd/Bjarni Helgason

Share This