SA lenti tveimur mörkum undir en vann

by | 14 nóv, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Vart þarf að taka það fram lengur þegar leikir í Topp-deildunum eru fjörugir og spennandi. Í kvöld hafði SA betur gegn Fjölni 4:3 á Akureyri þótt Fjölnir hafi komist tveimur mörkum yfir.

Þrátt fyrir sjö marka leik þá tók það leikmenn liðanna engu að síður tæpar 22 mínútur að koma pökknum í netið. Þar var á ferðinni Viggó Hlynsson sem er að koma aftur inn í Fjölnisliðið eftir fjarveru. Akureyringar voru svo sem ekki mjög lengi að jafna en það gerði Heiðar Jóhannsson á 29. mínútu.

Annar leikhlutinn var mjög fjörugur og gestirnir úr Grafarvogi bættu við tveimur mörkum fyrir síðasta leikhlutann. Hilmar Sverrisson kom þeim í 2:1 og Hektor Hrólfsson skoraði þriðja markið þegar einungis þrettán sekúndur voru eftir af leikhlutanum.

Gunnar Arason kom SA Víkingum aftur inn í leikinn með marki á 45. mínútu og innan við mínútu síðar hafði hann jafnað leikinn 3:3.

Á þessum tímapunkti var meðbyrinn alfarið með heimamönnum og þeir nýttu sér það. Eistinn Daniil Fursta skoraði sigurmarkið eftir rúmlega 47 mínútna leik.

Akureyringar unnu því upp tveggja marka forskot og komust yfir á innan við þremur mínútum. Hlutirnir eru fljótir að gerast á Íslandsmótinu í íshokkí. En þess má geta að öll þrjú mörkin komu úr Power Play og því er óhætt að segja að brottvísanir hafi reynst Fjölnismönnum dýrar.

SA er í efsta sæti deildarinnar með 19 stig eftir 9 leiki. SR er með 14 stig eftir 7 leiki, Fjölnir er í þriðja sæti með 12 stig eftir 8  leiki og U20 ára liðið er án stiga.

Mörk SA Víkinga: Gunnar Arasason 2, Daniil Fursa 1, Heiðar Jóhannsson 1.

Stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 2, Daniil Fursa 2, Gunnar Arason, Birkir Einisson, Atli Sveinsson, Arnar Kristjánsson.

Mörk Fjölnis: Viggó Hlynsson 1, Hilmar Sverrisson 1, Hektor Hrólfsson 1.

Stoðsendingar: Hilmar Sverrisson, Jere Koikkalainen, Hektor Hrólfsson, Viktor Svavarsson.

Myndatexti: Gunnar Arason (5) fagnar marki ásamt liðsfélögum sínum en hann skoraði tvívegis í kvöld og átti auk þess stoðsendingu.

Ljósmynd/Hafsteinn Snær

Leikur #12

laugardaginn 14. nóvember 2026 kl.16:45


Skautafélag Akureyrar

4

gegn

3


Fjölnir

1. Lota

Tími
Lið
Atvik
00:00
Markmaður á ís

#35 robert steingrimsson

00:00
Markmaður á ís

#1 þórir aspar

06:16
🔴 Brot (2 mín, Of margir á ís)

11:21
🔴 Brot (2 mín, Bregða með kylfu)

#91 daniil fursa

13:42
🔴 Brot (2 mín, Olnbogi)

#6 heiðar jóhannsson

2. Lota

Tími
Lið
Atvik
20:24
🔴 Brot (2 mín, Bregða með kylfu)

#5 gunnar arason

21:28
🔔 MARK (0 - 1, PP1)

#21 viggó hlynsson, Stoð: #25 hilmar sverrisson, #23 jere koikkalainen

22:18
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#19 sturla snorrason

26:41
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#19 sturla snorrason

28:56
🔔 MARK (1 - 1, EQ)

#6 heiðar jóhannsson, Stoð: #98 birkir einisson, #43 atli sveinsson

35:59
🔔 MARK (1 - 2, EQ)

#25 hilmar sverrisson, Stoð: #15 viktor svavarsson, #84 hektor hrólfsson

39:47
🔔 MARK (1 - 3, EQ)

#84 hektor hrólfsson, Án stoðsendinga

3. Lota

Tími
Lið
Atvik
42:59
🔴 Brot (2 mín, Leiktöf)

#15 viktor svavarsson

43:34
🔴 Brot (2 mín, Krækja)

#84 hektor hrólfsson

44:22
🔔 MARK (2 - 3, PP2)

#5 gunnar arason, Stoð: #91 daniil fursa, #8 arnar kristjansson

45:04
🔴 Brot (2 mín, Bregða með kylfu)

#14 bergthor agustsson

45:19
🔔 MARK (3 - 3, PP2)

#5 gunnar arason, Stoð: #91 daniil fursa, #10 johann leifsson

47:07
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#86 krisjanis abolins abols

47:16
🔔 MARK (4 - 3, PP1)

#91 daniil fursa, Stoð: #10 johann leifsson, #5 gunnar arason

50:47
🔴 Brot (2 mín, Kneeing)

#15 viktor svavarsson

52:10
🔴 Brot (2 mín, Fella)

#13 uni blöndal

55:29
🔴 Brot (2 mín, Ákeyrsla við batta)

#91 daniil fursa

57:04
🔴 Brot (2 mín, Hindrun)

#7 baldur mortensen

57:04
Leikhlé

-

59:45
🔴 Brot (2 mín, Of margir á ís)

60:00
Markmaður af ís

#35 robert steingrimsson

60:00
Markmaður af ís

#1 þórir aspar

Share This