Myndatexti: Kári Arnarsson átti þrjár stoðsendingar í kvöld og Egill Þormóðsson skoraði þrjú.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær
Ekkert lát er á markaleikjum í Topp-deild karla en í kvöld vann Skautafélag Reykjavíkur góðan sigur á Fjölni 7:3 í Skautahöllinni í Laugardal.
SR hefur þá unnið Fjölni tvívegis á skömmum tíma og styrkt stöðu sína verulega. Fyrir ekki svo löngu síðan voru liðin þrjú nánast í hnapp, ekki síst eftir sigur Fjölnis á SR í Laugardalnum um ofurhelgina. SR hefur nú tekist að slíta sig nokkuð frá Fjölni, alla vega í bili.
Tíu mörk voru skoruð í kvöld og hefðu mörkin hæglega getað orðið fleiri. Fjölnismenn fengu nefnilega fjöldan allan af færum í leiknum eins og SR en landsliðsmarkvörðurinn Helgi Þór Ívarsson stóð fyrir sínu í marki SR.
Íslandsmeistararnir í SR lögðu grunninn að sigrinum í fyrsta leikhluta og komust þá 4:1 yfir þótt Fjölnir hafi skorað fyrsta mark leiksins. Ekkert er reyndar gefið í leikjum í deildinni eins og komið hefur á daginn en eftir að hafa bætt við tveimur mörkum í öðrum leikhluta var staðan orðin 6:1 og spennan nánast farin úr leiknum.
Fjölnir skoraði þó fyrstu tvö mörkin í þriðja leikhlutanum og lagaði stöðuna í 6:3 en rothöggið kom þegar SR skoraði sjöunda markið.
Þar var á ferðinni gamla kempan Egill Þormóðsson en hann er heldur betur að finna taktinn eftir langa fjarveru og skoraði þrennu í kvöld. Eitthvað var um að áhorfendur hendu húfum og derhúfum inn á ísinn við þetta tilefni að erlendum sið.

Myndatexti: Egill Þormóðsson (61) skoraði þrennu, Níels Hafsteinsson (15) skoraði og átti stoðsendingu og Þorgils Eggertsson (40) átti stoðsendingu.
Ljósmynd/Egill Egilsson
SR er með 20 stig eftir 9 leiki, SA 19 stig eftir 9 leiki, Fjölnir 12 stig eftir 10 leiki og U20 ára liðið án stiga eftir 6 leiki.
Mörk SR: Egill Þormóðsson 3, Pétur Maack, Sölvi Freyr Atlason, Níels Hafsteinsson, Alex Máni Sveinsson.
Stoðsendingar: Kári Arnarsson 3, Haukur Steinsen 2, Sölvi Freyr Atlason, Alex Máni Sveinsson, Kári Arnarsson 3, Þorgils Eggertsson, Níels Hafsteinsson.
Mörk Fjölnis: Jere Koikkalainen, Viggó Hlynsson, Sturla Snorrason.
Stoðsendingar: Kristján Jóhannesson, Jere Koikkalainen, Viktor Mojzyszek,
Leikur #13
þriðjudaginn 24. nóvember 2026 kl.19:45

Skautafélag Reykjavíkur
7
3

Fjölnir
1. Lota

#50 tuomas heikkonen

Leikmaður finnst ekki

#23 jere koikkalainen, Stoð: #4 kristjan johannesson

#21 pétur maack, Stoð: #95 haukur steinsen, #18 solvi atlason

#18 solvi atlason, Stoð: #95 haukur steinsen

#61 egill thormodsson, Stoð: #17 alex máni sveinsson, #19 kári arnarsson

#15 níels hafsteinsson, Án stoðsendinga

-

#10 heiðar örn kristveigarson
2. Lota

#94 miks janozols

#61 egill thormodsson, Stoð: #40 þorgils eggertsson

#27 falur gudnason

#14 bergthor agustsson

#74 daniel otuoma

#74 daniel otuoma

#17 alex máni sveinsson

#17 alex máni sveinsson, Stoð: #19 kári arnarsson

#14 eduard kascak

#92 gabriel egilsson
3. Lota

#21 viggó hlynsson, Stoð: Leikmaður finnst ekki , #23 jere koikkalainen

#92 gabriel egilsson

#19 sturla snorrason, Án stoðsendinga

#61 egill thormodsson, Stoð: #15 níels hafsteinsson, #19 kári arnarsson

#21 pétur maack

#14 bergthor agustsson

#95 haukur steinsen

#18 freyr waaage

#40 þorgils eggertsson

#67 gabriel camiilo gunnlaugsson

-

#40 þorgils eggertsson

Leikmaður finnst ekki

#1 þórir aspar
