„Þeir mata mig bara”

by | 26 nóv, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Egill Þormóðsson, fyrrverandi landsliðsmaður, var að öðrum ólöstuðum maður vikunnar á Íslandsmótinu í íshokkí en hann skoraði þrennu þegar Íslandsmeistararnir í Skautafélagi Reykjavíkur unnu mikilvægan sigur á Fjölni 7:3 í Skautahöllinni í Laugardal. 

Egill er 35 ára gamall og snéri til baka á undirbúningstímabilinu eftir margra ára hlé frá ísnum. Hann var á árum áður lykilmaður hjá SR og varð síðar Íslandsmeistari með Esju. Þrátt fyrir það verður að teljast merkilegt hversu fljótur hann hefur verið að hafa áhrif á leik Íslandsmeistaranna. 

Ekki þarf að segja gamla manninum hvar markið er á íshokkívelli en Egill raðaði inn mörkunum þegar hann var uppi á sitt besta. 

„Nei nei það þarf ekki og það var gaman að þessu. Það small einhvern veginn allt hjá mér núna. Ég hef átt fullt af skotum á markið í leikjunum til þessa en þau hafa ekki endilega ratað í netið,” segir Egill og hælir liðsfélögunum meira en sjálfum sér. 

„Ég er að spila með geggjuðum gaurum, örugglega tveimur bestu sóknarmönnum á landinu, þannig að þetta er þægilegt fyrir mig. Ég verð að viðurkenna það. Ég þarf bara að koma mér fyrir á réttum stað og þeir mata mig bara. Þetta er því mjög gaman,” útskýrir Egill og neitar því ekki að hann sé kominn á bragðið í markaskorun. 

„Já já ég fer ekki að stoppa núna,” segir Egill og glottir en Egill náði býsna góðum tíma með liðinu fyrir tímabilið því hann fór að mæta á æfingar hjá SR strax síðasta vor. 

„Ég fór að skauta með liðinu eftir að þeir unnu í fyrra. Þeir æfðu vel inn í sumarið eða fram í júní og ég kom mér ágætlega inn í þetta á þeim tíma. Ég myndi segja að ég hafi afryðgað mig á þeim tíma og vonandi verður þetta bara betra með hverjum leiknum.”

Lífið tók bara við

Egill var tekinn svo ungur inn í meistaraflokk hjá SR að hans fyrstu leikir í deildinni voru fyrir um tveimur áratugum síðan eða svo. Spurður um hvort hann hafi tölu á hversu mörg tímabilin eru orðin í meistaraflokki segir hann svo ekki vera. Hann hafi ekki velt því fyrir sér en þau séu alla vega mörg. 

Hefur hann jafn mikla ánægju af því að spila og áður? 

„Ég hef verið náttúrlega verið í pásu síðustu árin. Nánast síðan ég spilaði með Esju. Þótt ég hafi tekið tímabil með Hafnarfirði þá var ekki mikil alvara í því. Ég var farinn að finna fyrir því að mig langaði að gera eitthvað skemmtilegt á ný og þetta er bara svo gaman. Það er erfitt að hætta alveg. Er ekki Ingvar [Þór Jónsson fyrrverandi landsliðsfyrirliði] fyrir norðan bara nýhættur? Þótt maður verði ekki jafn lengi í þessu og hann þá sýnir þetta að það er erfitt að hætta því þetta er svo skemmtilegt.” 

Þótt Egill hafi reyndar verið ansi lengi frá má velta því fyrir sér hvort ekki geti verið ágætt fyrir leikmenn að fá smá fjarlægð frá íþróttinni og koma ferskur til baka? 

„Jú mér finnst það alla vega fínt. Maður er orðinn fullorðinn og lífið bara tók við. Við erum ekki á atvinnumannastigi hérna heima og maður hafði ekki lengur eins mikinn tíma til að sinna hokkíinu. En ég er búinn að finna tíma núna.”

Náðum að slíta okkur frá þeim

Fjölnir vann SR í Laugardalnum um ofurhelgina en eftir það hefur SR unnið tvo leiki gegn Fjölni á skömmum tíma og komið sér fyrir í efsta sæti deildarinnar. 

„Þetta voru mikilvæg stig því við náðum að slíta okkur aðeins frá þeim. Nú er einn mikilvægur leikur eftir fyrir jól og við gætum náð þægilegu forskoti yfir jól og áramót,” segir Egill og er ánægður með hversu fjörugir leikirnir hafa verið í deildinni. 

„Þetta hafa verið mjög jafnir leikir og mjög skemmtilegir leikir. Þótt þessi leikur í kvöld hafi farið 7:3 þá voru þeir alltaf inni í honum allan tímann og þeir áttu fleiri skot á markið í öðrum leikhluta alla vega. Leikurinn var því jafnari en úrslitin segja til um.” 

Finnst Agli að SR-liðið sé á góðu róli hvað spilamennskuna varðar? 

„Kárlega. Við erum alltaf að verða betri finnst mér. Við reynum að fylgja því sem Milos [Miloslav Racansky þjálfari] vill gera þótt það komi kaflar í leikjunum þar sem slokknar á okkur. Þegar það gerist þá eigum við það til að missa pökkinn klaufalega. Við þurfum bara að gera einföldu hlutina almennilega og þá falla úrslitin með okkur.”

SR-ingar eru núverandi meistarar. Þótt Egill hafi ekki spilað á síðasta tímabili þá fylgdist hann örugglega vel með uppeldisfélaginu. Getur hann borið liðið saman miðað við á síðasta tímabili? 

„Mér finnst Akureyri og Björninn hafa bætt sig frá því í fyrra og virðast vera sterkari. Ég tel að okkar lið sé á svipuðu róli og mögulega betra ef eitthvað er,” segir Egill Þormóðsson fyrrverandi og núverandi markamaskína. 

Myndatexti: Egill Þormóðsson fagnar mörkum sínum á móti Fjölni.

Ljósmyndir/Hafsteinn Snær

Share This